Fréttir

Heimsókn þingmanna Vestnorræna ráðsins

Fimmtudaginn 3. september síðastliðinn heimsóttu þingmenn Vestnorræna ráðsins HA til þess að kynna sér þá fjölbreyttu starfsemi á sviði norðurslóðamála sem fram fer á háskólasvæðinu.
Lesa meira

Sýningaropnun 16. September: Mapping Memories í Ilulissat

Miðvikudaginn 16. september opnar sýningin Mapping Memories í Ilulissat Icefjord Center í Ilulissat á Grænlandi. Að sýningunni standa Nordregio, Ilulissat Icefjord Center, Stofnun Vilhjálms Stefánssonar, Places.nu, NAPA - Norræna stofnunin á Grænlandi og Norræna ráðherranefndin.
Lesa meira

Maria Ackrén með kafla í bókinni Nordic Crisis Management

Bókin Nordic Crisis Management: Well-Performing Governance During COVID 19 er komin út. Þar skrifaði Maria Ackren, forstöðumaður SVS kaflann "Greenland and COVID-19: Small Resources, Delayed Transmission, and Trust"
Lesa meira

Skrifstofa IASSA flytur til SVS

Skrifstofa IASSA (International Arctic Social Sciences Association) er flutt til Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar við Háskólann á Akureyri.
Lesa meira

Kallað eftir ágripum: Arctic Biodiversity Summit á Grænlandi

Auglýst er eftir tillögum að málstofum, ágripum erinda og veggspjöldum fyrir Arctic Biodiversity Summit sem fram fer í Nuuk á Grænlandi dagana 16.-18. mars 2027. Háskólinn á Akureyri gegnir lykilhlutverki við skipulagningu ráðstefnunnar.
Lesa meira

Námskeið um norðurslóðir kennt í fyrsta sinn í Vísindaskólanum

Dagana 22.–26. júní var Vísindaskóli unga fólksins haldinn í tólfta sinn við Háskólann á Akureyri. Um er að ræða vikulangan skóla fyrir börn á aldrinum 11–13 ára þar sem þátttakendur fá tækifæri til að kynnast vísindum, rannsóknum og fjölbreyttri starfsemi háskólans.
Lesa meira

Fyrsti fundur rannsóknateymis SustainME verkefnisins

Vísindafólk Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar, þau prófessor Joan Nymand Larsen og dr. Jón Haukur Ingimundarson, tóku á dögunum þátt í fyrsta aðalfundi SustainME verkefnisins (Sjálfbær nýting hafsvæða á norðurslóðum). Fundurinn fór fram á Dönsku veðurstofunni (DMI) í Kaupmannahöfn 17.–18. júní.
Lesa meira

Vettvangsvinna fyrir ICEBERG á Íslandi og suður-Grænlandi

Vísindamenn og hagsmunaaðilar vinna saman í ICEBERG verkefninu
Lesa meira

Stofnun Vilhjálms á UArctic Congress 2026 í Færeyjum

Maria Ackrén og Helga Númadóttir hjá Stofnun Vilhjálms Stefánssonar tóku á dögunum þátt í UArctic Congress í Færeyjum ásamt fjölmennum hópi samstarfsfólks frá HA og norðurslóðastofnunum á háskólasvæðinu.
Lesa meira

Marco Lonero hjá SVS

Meistaranemi frá Ítalíu, Marco Lonero, dvaldi frá febrúar til júní á SVS í tengslum við ICEBERG verkefnið.
Lesa meira