SVS á Hringborði norðurslóða 8.-10. október

© Arctic Circle, 8 október 2026
© Arctic Circle, 8 október 2026

Starfsfólk Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar tók þátt í Hringborði norðurslóða (Arctic Circle Assembly) sem fram fór fram dagana 8.-10. október, ásamt fjölmennri sendinefnd fræðafólks og sérfræðinga þekkingarmiðstöðvar fyrir málefni norðurslóða sem staðsett er á háskólasvæðinu á Akureyri.

Ráðstefnan sem haldin er í Hörpu í október ár hvert er einn stærsti alþjóðlegi samráðs-vettvangurinn um norðurslóðir. Viðburðurinn dregur árlega til sín fjölda þátttakenda úr stjórnsýslu, vísindum, atvinnulífi, félagasamtökum auk fulltrúa frumbyggjaþjóða á norðurslóðum. Í ár komu saman í Hörpu rúmlega 2000 manns víðs vegar að úr heiminum til þess að ræða málefni svæðisins í rúmlega 200 málstofum og pallborðum.

Viðburðaríkir dagar

Frá SVS var Romain Chuffart m.a. með framsögu um norðausturleiðina (Northern Sea Route - NSR) frá sjónarhorni alþjóðalaga, samband Íslands og Japans og starfsferil í rannsóknum; Joan Nymand Larsen tók þátt í málstofum um ójöfnuð og ferðaþjónustu á norðurslóðum; Jón Haukur ræddi félagslega sjálfbærni og Karl Karlsson fjallaði um stjórnarhætti út frá hugmyndafræði One Health.

Auk málstofanna fóru fjölmargir hliðarviðburðir, fundir og móttökur fram meðfram formlegri dagskrá í Hörpu. Fulltrúar SVS sóttu meðal annars viðburð á vegum Norðurskautsráðsins þar sem 30 árum af samstarfi var fagnað með tónlist og veitingum, heimsóttu ísbrjót sem lá við höfn í gömlu höfninni í Reykjavík, fóru í veislu grænlensku sendiskrifstofunnar og sóttu lokamóttöku í boði ríkistjóra Alaska þar sem hljómsveitin Pamyua sem skipuð er hljómsveitameðlimum sem tilheyra Yup’ik Inuit frumbyggjum í Alaska hélt frábæra tónleika.