Sýningaropnun 16. September: Mapping Memories í Ilulissat

Sýningaropnun 16. september 2026

Miðvikudaginn 16. september opnar sýningin Mapping Memories í Ilulissat Icefjord Center í Ilulissat á Grænlandi. Að sýningunni standa Nordregio, Ilulissat Icefjord Center, Stofnun Vilhjálms Stefánssonar, Places.nu, NAPA - Norræna stofnunin á Grænlandi og Norræna ráðherranefndin.

Á sýningunni bjóða samstarfsaðilar Mapping Memories verkefnisins gestum að kanna áhrif loftslagsbreytinga á fólk og samfélög í gegnum persónulegar frásagnir og miðlun þekkingar og minninga tengdu landslagi sem verður fyrir áhrifum sífreraþiðnunar. Sýningin varpar ljósi á afleiðingar umhverfisbreytinga á söguleg svæði og óáþreifanlegan menningararf á sumum af afskekktustu svæðum heims, í gegnum frásagnir fólks sem upplifir þessar breytingar af eigin raun.

Viðburðurinn er opinn öllum. Sjá dagskrá [hér]

Fyrir þá sem ekki eiga kost á að sækja sýninguna í Ilulissat heim er hægt að nálgast stafrænan aðgang [hér]