Dagana 21. apríl -1. maí tók SVS þátt í ICEBERG vettvangsvinnu á norðaustur Íslandi, nánar tiltekið á Húsavík og Akureyri, og síðan í Qaqortoq á suður Grænlandi. Viðfangsefnin voru sem fyrr samfélagsþátttaka, mengunarvarnir og loftslagsbreytingar og gekk vinnan út á góða samvinnu við hagaðila á hverjum stað og fjalla um framtíðarsýnir út frá væntum staðbundnum áhrifum mengunar og loftslagsbreytinga.
Það sem svo hæst bar voru málstofur þar sem fjallað var um ólíkar mögulegar sviðsmyndir fyrir framtíðina á hvoru svæði fyrir sig. Þar komu saman ýmsir ólíkir hagaðilar eins og fulltrúar sveitafélaganna, kennarar, aðilar úr ferðaþjónustu, almennir borgarar og ýmsir sérfræðingar. Ræddu þátttakendur hvernig umhverfislegar- félagslegar- og efnahagslegar breytingar gætu mótað framtíð svæðanna næstu áratugina. Þar að auki settu þau fram hugmyndir um möguleg viðbrögð og tækifæri sem gætu stuðlað að stefnumótun sem einkenndist af góðu áfallaþoli, aðlögunarhæfni og framsýni.
Lesa má meira á heimasíðu ICEBERG verkefnisins
Myndir: Joan Nymand Larsen, Thanee Prior, ICEBERG

