Vísindafólk Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar, þau prófessor Joan Nymand Larsen og Dr. Jón Haukur Ingimundarson, tóku á dögunum þátt í fyrsta fundi rannsóknateymis SustainME verkefnisins. Fundurinn fór fram á Dönsku veðurstofunni (DMI) í Kaupmannahöfn 17.–18. júní.
Meginmarkmið verkefnisins er að skapa nýja þekkingu með virkri þátttöku heimafólks sem styður við sjálfbæra nýtingu hafsvæða á norðurslóðum. Verkefninu er sérstaklega ætlað að finna og meta lausnir sem geta dregið úr áhættu sem samanlögð áhrif minnkandi hafíss og aukinna umsvifa manna á hafsvæðum norðurslóða hefur í för með sér.
Joan Nymand Larsen mun í samstarfi við alþjóðlegt samstarfsfólk leiða rannsóknir innan verkefnisins sem snúa að fæðuöryggi. Sú vinna felur í sér vettvangsrannsóknir í Ilulissat í Diskó-flóa á Vestur-Grænlandi og beinir sjónum að áhrifum umhverfis-, hagrænna- og félagslegra breytinga á samfélög svæðisins. Vinna við verkefnið er þegar hafin en Joan Nymand Larsen og Jón Haukur Ingimundarson sóttu fyrstu fundina með heimafólki í Ilulissat núna í vor og hófu undirbúning komandi vettvangsrannsókna sem eru á dagskrá í haust.

Rannsóknin nálgast fæðuöryggi og velferð á heildrænan hátt sem samþættir andlega og líkamlega heilsu, efnahagslegt öryggi og sjálfbærar leiðir til lífsviðurværis og nær bæði til sjálfsöflunar næringar og aðkeyptrar fæðu. Sá hluti verkefnisins sem er helgaður fæðuöryggi beinir sjónum sérstaklega að tengslum hafíss, hafskilyrða, sjóflutninga og lifandi auðlinda hafsins í breiðara samhengi velferðar og fæðuöryggis samfélaga.
SustainME er þverfaglegt rannsóknarverkefni fjármagnað af NordForsk. University of Ottowa í Kanada (Dr. Jackie Dawson) fer fyrir verkefninu í samvinnu við Hafrannsóknastofnun Noregs (Dr. Lis Jørgensen). Stofnun Vilhjálms Stefánssonar er ein 17 samstarfsstofnana verkefnisins sem fjármagnað er til fimm ára (2025-2029).
NordForsk – Sustainable Human Use of the Marine Environment (SustainME)
Prófessor Joan Nymand Larsen jnl@unak.is