WAGE - Arctic Economy and Social Transitions

WAGE – Hagkerfi og félagslegar umbreytingar á norðurslóðum (Arctic Economy and Social Transitions)
SSHRC (Social Sciences and Humanities Research Council of Canada) partnership grant (2021-2026)
WAGE rannsóknateymið er leitt af Gérard Duhaime, University of Laval, Quebec. Aðalrannsakandi fyrir tilviksrannsókn á Suður-Grænlandi: Dr. Joan Nymand Larsen.
Tilviksrannsóknin á Suður-Grænlandi innan WAGE samstarfsins beinir sjónum sínum að félagslegum og efnahagslegan ójöfnuði í Nanortalik, Narsaq og Qaqortoq. Með rannsókninni er leitast við að varpa ljósi á innviði og áskoranir á norðurslóðum sem viðhalda valdaójafnvægi, ójöfnuði og ójafnri dreifingu efnahagslegs ávinnings og kostnaðar. Meginmarkmiðin snúa að greiningu lykiláhrifaþátta að baki efnahagsbreytingum; að rannsaka áhrif dreifingu gæða með hliðsjón af stofnanabreytingum; og að safna gögnum og greina viðhorf heimafólks með áherslu á hagnaðardreifingu og valdaójafnvægi og þau fórnarskipti sem eiga sér stað. Notast er við lýðvísindi (þátttöku almennings í vísindastarfi) við rannsóknina þar sem heimafólk og hagaðilar taka virkan þátt í þekkingarsköpun. Tilviksrannsóknin stuðlar að heildarmarkmiðum WAGE samstarfsins um rannsóknir á núverandi stöðu ójafnaðar og dreifingu auðs og þeim þáttum sem liggja að baki.
Rannsakendur við Stofnun Vilhjálms Stefánssonar:
Prófessor Joan Nymand Larsen
Dr. Jón Haukur Ingimundarson
Helga Guðrún Númadóttir, MA
Fyrir frekari upplýsingar, hafið samband við Dr. Joan Nymand Larsen hjá jnl@unak.is
Vefsíða WAGE: https://www.wage.ulaval.ca/