GRASP - Greenland's Alliance Dilemma Amidst Great Power Struggles
GRASP - Greenland's Alliance Dilemma Amidst Great Power Struggles - A Comparison with Arctic and Non-Arctic States and Regions
Verkefnið rannsakar samspil efnahagslegra hagsmuna og öryggissjónarmiða á Grænlandi á tímum aukinnar samkeppni stórvelda á norðurslóðum. Rannsóknin beinir sjónum að þeim áskorunum sem geta skapast þegar efnahagslegir og öryggistengdir hagsmunir fara ekki saman er Grænland mótar sambönd sín við Bandaríkin, Rússland og Kína. Verkefnið greinir markmið og keppikefli ríkja á norðurslóðum út frá kenningum alþjóðastjórnmála og stjórnmálahagfræði. Með því að bera stöðu Grænlands saman við Álandseyjar, Færeyjar og Ísland er miðað að því að draga lærdóm af svipuðum áskorunum á öðrum svæðum sem nýst gætu Grænlandi á alþjóðavettvangi.
Verkefnið er leitt af Nasiffik, rannsóknamiðstöð um utanríkis- og öryggismál (dr. Rasmus Leander Nielsen) við Ilisimatusarfik/Háskólann á Grænlandi.
Rannsakandi við Stofnun Vilhjálms Stefánssonar:
Dr. Maria Ackrén