Kallað eftir ágripum: Arctic Biodiversity Summit á Grænlandi

© Carsten Egevang
© Carsten Egevang

Auglýst er eftir tillögum að málstofum, ágripum erinda og veggspjöldum fyrir Arctic Biodiversity Summit ráðstefnuna sem fram fer í Nuuk á Grænlandi dagana 16.-18. mars 2027.

Viðburðurinn er hluti af formennskuáætlun Danmerkur í Norðurskautsráðinu (Chairship programme) og byggir á Stefnuáætlun Norðurskautsráðsins 2021–2030 og Aðgerðum fyrir líffræðilega fjölbreytni á norðurslóðum 2025–2035, sem unnin var af CAFF - vinnuhópi Norðurskautsráðsins um verndun lífríkis.

Háskólinn á Akureyri gegnir lykilhlutverki við skipulagningu ráðstefnunnar. Tom Barry, sviðsforseti Hug- og félagsvísindasviðs, vinnur með umhverfis-, náttúru-, orku- og rannsóknamálaráðuneyti Grænlands, utanríkis-, viðskipta- og auðlindamálaráðuneyti Grænlands, Náttúrufræðistofnun Grænlands og Háskólanum í Árósum að undirbúningi viðburðarins.

Markmið ráðstefnunnar er að miðla þekkingu og efla samtal um líffræðilega fjölbreytni á norðurslóðum meðal vísindafólks, frumbyggja, stefnumótenda, opinberra starfsmanna, nemenda, fulltrúa atvinnulífsins og fleiri hagsmunaaðila og stuðla að sjálfbærni og verndun líffræðilegrar fjölbreytni á norðurslóðum.

Skipulagning og framkvæmd ráðstefnunnar er styrkt af danska umhverfisráðuneytinu, Norrænu ráðherranefndinni og Velux-Foundation.

Kallað eftir ágripum

Umsóknafrestur vegna málstofa (session submissions): 13. september 2026

Umsóknafrestur vegna erinda (talk submissions): 15. október 2026

Umsóknafrestur vegna veggspjalda (poster submissions): 1. nóvember 2026

Arctic Biodiversity Summit 2027 | Arctic Council 

Líffræðileg fjölbreytni á norðurslóðum áherslumál til framtíðar | Háskólinn á Akureyri