Skrifstofa IASSA flytur til SVS

Skrifstofa IASSA (International Arctic Social Sciences Association) er flutt til Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar við Háskólann á Akureyri.
 
IASSA eru alþjóðleg samtök félagsvísindafólks sem stundar rannsóknir á norðurslóðum.
Maria Ackrén sem nýlega tók við starfi forstöðumanns Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar er kjörinn forseti samtakanna.

 

Helga Guðrún Númadóttir og Sveinbjörg Smáradóttir hjá SVS munu sinna verkefnum skrifstofu IASSA.