Til baka

CDRP - Civil Defence and Risk Planning in Greenland and the Faroe Islands

CDRP - Civil Defence and Risk Planning in Greenland and the Faroe Islands

Grænland og Færeyjar standa frammi fyrir ófyrirsjáanlegri blöndu áhættuþátta hvað varðar samspil stjórnmála og landfræði. Á sama tíma eru almannavarna- og viðbragðskerfum takmörk sett og forsendur áhættustjórnunar og viðnámsþróttar samfélaga hafa lítið verið rannsakaðar. CDRP verkefnið skoðar hvernig stjórnsýslukerfi Færeyja og Grænlands skipuleggja viðbúnað og almannavarnir á umbrotatímum. Rannsóknin styðst við einstakt aðgengi að gögnum um þá ferla sem liggja til grundvallar áhættumats á þjóðaröryggi í Færeyjum sem gerir rannsakendum kleift að greina stefnumótun á sviði almannavarna og viðbúnaðar landsins í rauntíma og bera hana saman við nálganir á Grænlandi. Markmiðið er að efla stefnumótun og áhættustjórnun á landsvísu í báðum löndum og leggja fram mikilvægt framlag til fræðilegrar umræðu um áhættustjórnun og skipulagt viðnám gegn hættu.

Verkefnið leiðir Rógvi Olavsson hjá Fróðskaparsetri Færeyja.

Rannsakandi við Stofnun Vilhjálms Stefánssonar:

Dr. Maria Ackrén