Heimsókn þingmanna Vestnorræna ráðsins

Þingmenn Vestnorræna ráðsins ásamt fulltrúum Norðurslóðamiðstöðvar
Þingmenn Vestnorræna ráðsins ásamt fulltrúum Norðurslóðamiðstöðvar

Fimmtudaginn 3. september síðastliðinn heimsóttu þingmenn Vestnorræna ráðsins Háskólann á Akureyri til að kynna sér þá fjölbreyttu starfsemi á sviði norðurslóðamála sem fram fer á háskólasvæðinu. Vestnorræna ráðið er þingmannavettvangur þjóðþinga Færeyja, Grænlands og Íslands. 

Heimsóknin hluti af dagskrá ársfundar Vestnorræna ráðsins

Efnt var til heimsóknarinnar í tengslum við ársfund ráðsins sem haldinn var á Akureyri dagana 1.-3. september. Heimsóknin var skipulögð af aðilum innan Norðurslóðamiðstöðvar Íslands, öflugs þekkingarsamfélags sem byggst hefur upp á háskólasvæðinu á Akureyri. Miðstöðinni tilheyra Háskólinn á Akureyri, Stofnun Vilhjálms Stefánssonar við Háskólann á Akureyri, Norðurslóðanet Íslands, Alþjóðlega norðurskautsvísindanefndin, Rannsóknamiðstöð ferðamála (RMF) og vinnuhópar Norðurskautsráðsins CAFF og PAME. Fulltrúar þessara aðila tóku á móti þingmönnum Vestnorræna ráðsins og kynntu fjölbreytt starf miðstöðvarinnar á sviði rannsókna, þekkingarmiðlunar, stefnumótunar og alþjóðlegs samstarfs á norðurslóðum.

Öflugt þekkingarsamfélag á norðurslóðum

Í Norðurslóðastefnu Íslands er Akureyri skilgreind sem Norðurslóðamiðstöð Íslands þ.e. miðstöð íslenskrar og alþjóðlegrar þekkingar á málefnum norðurslóða. Á háskólasvæðinu hefur myndast öflugt þverfaglegt þekkingarsamfélag þar sem fjölbreyttar stofnanir og skrifstofur vinna að rannsóknum, menntun, stefnumótun og samstarfi á sviði norðurslóðamála. Akureyri en ein stærsta miðstöð Norðurskautsráðsins og fjölmörgum vöktunar- og matsverkefnum sem ná til allra norðurslóða er stýrt af stofnunum með aðsetur á Akureyri. Nánari upplýsingar má finna hér.

Fjölbreytt verkefni og sameiginlegar áskoranir

Þingmennirnir fengu kynningu á hlutverki Norðurslóðamiðstöðvar Íslands og þeim fjölmörgu verkefnum sem aðilar hennar taka þátt í á sviði norðurslóðamála. Meðal umfjöllunarefna voru alþjóðlegt vísindasamstarf á norðurslóðum, breytt landslag í alþjóðasamvinnu, vöktun og verndun líffræðilegrar fjölbreytni, áhrif loftslagsbreytinga, sjálfbær nýting auðlinda, auknar skipasiglingar á norðurslóðum, verndun haf- og strandsvæða og samfélagsleg áhrif vaxandi ferðaþjónustu.

Vestnorrænt samstarf í brennidepli

Mikið af því rannsóknastarfi sem fram fer á háskólasvæðinu snerti sameiginleg hagsmunamál Íslands, Færeyja og Grænlands. Jafnframt fer stór hluti starfsins fram í alþjóðlegu samstarfi þar sem löndin þrjú koma að með einum eða öðrum hætti. Þetta samstarf setti sterkan svip á heimsóknina og skapaði vettvang fyrir líflegar umræður milli þingmannanna og sérfræðinga Norðurslóðamiðstöðvar Íslands.

Ljósmyndir @Sindri Swan