Dagana 22.–26. júní var Vísindaskóli unga fólksins haldinn í tólfta sinn við Háskólann á Akureyri. Um er að ræða vikulangan skóla fyrir börn á aldrinum 11–13 ára þar sem þátttakendur fá tækifæri til að kynnast vísindum, rannsóknum og fjölbreyttri starfsemi háskólans. Markmið Vísindaskólans er að bjóða ungmennunum upp á fræðandi og skemmtilega afþreyingu, veita innsýn í ólíkar fræðigreinar og rannsóknir innan háskólans og efla áhuga á námi og vísindum.
Vísindaskóli unga fólksins tók fyrst á móti nemendum sumarið 2015. Á síðasta ári hlaut skólinn viðurkenningu Rannís fyrir framúrskarandi Vísindamiðlun ársins sem afhent var við hátíðlega athöfn á Vísindavöku Rannís. Kennd eru fimm námskeið þar sem nemendum er skipt upp í fimm hópa og fer hver hópur í gegnum öll námskeiðin. Að lokinni viðburðaríkri viku útskrifuðust nemendur við hátíðlega athöfn í Hátíðarsal Háskólans á Akureyri.
Í ár var námskeið um norðurslóðir í fyrsta sinn kennt í Vísindaskólanum og voru það Helga Númadóttir hjá Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og Hildur Sólveig Elvarsdóttir hjá Lagadeild sem höfðu umsjón með námskeiðinu. Ungmennin lærðu meðal annars um norðurslóðastarfsemi á háskólasvæðinu, stöðu Íslands á norðurslóðum, Grænland og ungmenni á Grænlandi. Á meðal viðfangsefna í öðrum námskeiðum var til dæmis jafnrétti og mismunun, Barnasáttmálinn, grænmetisræktun, náttúruvá og sólmyrkvinn sem framundan er 12. ágúst næstkomandi. Einnig var farið í rannsóknarferð í stórmarkað og í heimsókn í endurvinnslustöð.
Við þökkum ungmennunum kærlega fyrir skemmtilega daga og að hafa lífgað upp á háskólasvæðið þessa viðburðaríku viku í júní.
Það er rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri (RHA) sem sér um rekstur og skipulag Vísindaskólans. Dana, sérfræðingur hjá RHA, hefur umsjón með verkefninu ásamt Sigrúnu Stefánsdóttur, fjölmiðlafræðingi, stundakennara við HA og einum af frumkvöðlum Vísindaskólans.
