Kallað eftir ágripum fyrir ICASS XII í Nuuk

Alþjóðleg samtök félagsvísindafólks sem stundar rannsóknir á norðurslóðum (the International Arctic Social Sciences Association – IASSA) auglýsir eftir tillögum að málstofum og ágripum erinda fyrir 12. Alþjóðaþing félagsvísinda norðurslóða (International Congress of Arctic Social Sciences – ICASS XII). Þingið verður haldið í Nuuk á Grænlandi dagana 31. maí - 4. júní 2027.

Þingið mun leiða saman félagsvísindafólk, stefnumótendur, fulltrúa frumbyggja, ungt fólk og aðra hagaðila til að ræða fjölbreytt málefni sem snerta norðurslóðir. Þemu þingsins endurspegla ólíkar greinar félagsvísinda og taka meðal annars til samfélagsþróunar, stjórnmála og alþjóðasamskipta, réttinda frumbyggja, efnahagsþróunar, umhverfismála auk fjölmargra annarra viðfangsefna.

Maria Ackrén, forstöðumaður Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar, er kjörinn forseti IASSA.

Nánari upplýsingar um IASSA og ICASS XII má nálgast á heimasíðu IASSA [hér]

Upplýsingar um umsóknarferlið má finna [hér]