IASSA

IASSA (International Arctic Social Sciences Association) 

Taktu dagana frá – ICASS XII 31. maí - 4. júní 2027

International Arctic Social Sciences Association (IASSA) eru alþjóðleg samtök félagsvísindafólks sem stundar rannsóknir á norðurslóðum. Maria Ackrén, forstöðumaður Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar er kjörinn forseti samtakanna og mun leiða saman félagsvísindafólk á ICASS XII  – 12. alþjóðaþingi félagsvísinda norðurslóða (International Congress of Arctic Social Sciences) sem haldið verður í Nuuk á Grænlandi dagana 31. maí - 4. júní 2027.

Þingið verður haldið í Katuaq - menningarmiðstöð og Hótel Hans Egede í miðbæ Nuuk. Nánari upplýsingar verða tilkynntar á næstu vikum.