Föstudaginn 18. september heimsótti Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra Borgir þar sem endurnýjaður samstarfssamningur Norðurslóðanets Íslands og Utanríkisráðuneytisins var undirritaður við hátíðlega athöfn.
Samninginn undirrituðu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Embla Eir Oddsdóttir, forstöðumaður Norðurslóðanets Íslands. Elín Díanna Gunnarsdóttir aðstoðarrektor Háskólans á Akureyri og Hlynur Guðjónsson deildarstjóri norðurslóðadeildar í utanríkisráðuneytinu og aðalfulltrúi Íslands í embættismannanefnd Norðurskautsráðsins, voru jafnframt viðstödd.
Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og Háskólinn á Akureyri hafa átt í nánu samstarfi við Norðurslóðanetið um árabil. Endurnýjaður samstarfssamningur Norðurslóðanetsins við Utanríkisráðuneytið eflir norðurslóðamiðstöðina á Akureyri enn frekar, en eitt af fjórum megin áherslusviðum nýja samstarfssamningsins snýr að áframhaldandi þróun þeirrar miðstöðvar norðurslóðamála á Íslandi sem myndast hefur á Akureyri, í samstarfi áhugasama aðila af landinu öllu, samkvæmt norðurslóðastefnu Íslands.
Í tilefni undirritunarinnar bauð Norðurslóðanetið til móttöku fyrir hagaðila og samstarfsaðila á sviði norðurslóðamála í andyrinu á Borgum. Utanríkisráðherra ávarpaði gesti og ítrekaði í erindi sínu mikilvægi Norðurslóðanetsins, sem og öflugs samstarfs og þekkingaruppbyggingar í málefnum norðurslóða, sem nú eru í brennidepli á alþjóðavettvangi. Ráðherra lagði áherslu á mikilvægi norðurslóðastofnananna og þekkingarsamfélagsins á Akureyri og hvernig bærinn hefur fest sig í sessi sem miðstöð innlendrar og alþjóðlegrar þekkingar um málefni norðurslóða á Íslandi.
Þá færði utanríkisráðherra Háskólanum á Akureyri, CAFF, PAME, Stofnun Vilhjálms Stefánssonar, International Arctic Science Committee (IASC), Akureyrarbæ, Norðurslóðanetinu og öðrum samstarfsaðilum á Akureyri þakkir fyrir forystu í norðurslóðamálum jafnt innanlands sem utan og gott samstarf við utanríkisráðuneytið.
Fréttatilkynningu Utanríkisráðuneytisins má finna [hér]