Þriðja vinnustofa verkefnisins Sterkari staða norðurslóðarannsókna á Íslandi fór fram í Háskóla Íslands þann 11. mars síðastliðinn. Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Norðurslóðanet Íslands og Rannís standa að verkefninu.
Vinnustofan, sem bar yfirskriftina „Orkuskipti og áhrif þeirra á samfélög“ er sú þriðja í röð fjögurra í vinnustofuröð sem miðar að því að efla samtal og samráð rannsóknarumhverfisins hérlendis um málefni norðurslóða. Verkefnið er fjármagnað af samstarfssjóði háskóla á vegum menningar- nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins.
Markmið þriðju vinnustofunnar var að skapa opinn vettvang fyrir samtal um helstu áskoranir og rannsóknargetu hér á landi á sviði orkuskipta og áhrifa þeirra á samfélög, efla vísindasamstarf og styrkja sókn íslenskra aðila í erlenda samkeppnissjóði.
Á fyrri vinnustofunum tveimur voru annars vegar aðlögun að loftslagsbreytingum og hinsvegar málefni hafsins og alþjóðlegt vísindasamstarf í forgrunni. Fjórða og síðasta vinnustofan fer fram í Háskólanum á Akureyri í september 2026, þar sem sjónum verður beint að umhverfisvernd og sjálfbærri nýtingu auðlinda. Nánari tímasetning og dagskrá verður auglýst síðar.
Nánari upplýsingar [hér]