Stronger Arctic Research in Iceland

Fyrsta af fjórum vinnustofum um rannsóknir og tækifæri á Íslandi varðandi norðurheimskaustmálefni var haldin 27. maí 2025, þar sem 66 þátttakendur frá öllum íslensku háskólunum og lykil ríkistofnunum, t.d. Veðurstofu, Hafró og Náttúrufræðistofnun Íslands, komu saman til að ræða aðlögun að loftslagsbreytingum á Íslandi.
Markmiðið með vinnustofunni var að skapa opinn vettvang fyrir samtal um helstu þekkingargöp og rannsóknargetu hérlendis, auk þess að kortleggja og ræða hvernig rannsóknarsamfélagið getur mætt þeim áskorunum og nýtt þau tækifæri sem tengjast sviðinu.
Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Norðurslóðanet Íslands og Rannís standa að vinnustofunni í samstarfi við Loftslagsráð, og markar hún upphaf verkefnisins Norðurslóðarannsóknir á Íslandi sem miðar að því að efla samtal og samráð rannsóknarumhverfisins hérlendis um málefni norðurslóða og er fjármagnað af samstarfssjóði háskóla á vegum Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins.
Næstu vinnustofan verður haldin á Akureyri í haust og frekari upplýsingar um þema vinnustofa verður fjlótlega tilkynnt.