DVM Karl Karlsson hefur verið ráðinn til Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar sem sérfræðingur í ICEBERG rannsóknarverkefninu frá 1. febrúar 2026. Karl er einnig í ráðgjafarnefnd ICEBERG og vísindafélagi SVS.
Karl er sjálfstætt starfandi ráðgjafi með áherslu á þverfaglegu nálgunina "Ein heilsa" (One Health), sem vísar til þess að heilbrigði manna, dýra og umhverfis sé samtengt og háð hvert öðru innbyrðis. Karl hefur áralanga starfsreynslu tengda gæðamálum, verkefnastjórnun og úttektum á sviði heilbrigðis og velferðar dýra, matvælaöryggis og lýðheilsu.
Velkominn, Karl!