Dagana 28.–29. apríl tók Helga Númadóttir hjá Stofnun Vilhjálms Stefánssonar þátt í tveggja daga vinnustofu fyrir unga rannsakendur (Early Career Researchers) sem haldin var á Moesgaard-safninu rétt fyrir utan Árósir í Danmörku. Viðburðurinn var skipulagður af Emilie Jensen doktorsnema við Árósaháskóla og fjármagnaður af The Danish Agency for Higher Education and Science.
Vinnustofan leiddi saman fjölbreyttan hóp þátttakenda sem starfa á sviði rannsókna á norðurslóðum —frá Grænlandi, Færeyjum, Íslandi, Danmörku og Kanada— með það að markmiði að skoða, út frá rannsóknum hvers og eins, framkvæmd rannsókna og hvernig hægt er að vinna með og efla þekkingu með samstarfi þvert á þekkingarkerfi. Framlag Helgu beindi sjónum að Íslandi og hvernig þekkingarsköpun í íslensku samfélagi mótast af sögulegum þáttum með rætur í nýlenduhugmyndafræði og áhrifum þess á viðhorf til umheimsins, allt frá Grænlandi til Palestínu.
Kærar þakkir til Emilie fyrir að leiða saman frábæran hóp og til allra þátttakenda fyrir uppbyggilegar og ánægjulegar umræður og samstarf.
