Vinnustofa um lagalegar og siðferðilegar hliðar loftslagsverkfræði á norðurslóðum

Þátttakendur vinnustofunnar í Tromsø, febrúar 2026
Þátttakendur vinnustofunnar í Tromsø, febrúar 2026

Dagana 5.-6. febrúar stóð Dr. Romain Chuffart Nansen prófessor fyrir vinnustofu undir yfirskriftinni „Legal and Ethical Issues in Arctic Climate Interventions.

Vinnustofan var haldin í Fram Centre í Tromsø, norður-Noregi, í sömu viku og hin árlega Arctic Frontiers ráðstefna fór fram.

Viðburðurinn sem var fjármagnaður af bresku norðurslóðaskrifstofunni (UK Arctic Office) og skipulagður í samvinnu við prófessor Philip Steinberg (Háskólanum í Durham), var haldinn í tengslum við vinnu AMAP, vinnuhóp Norðurskautsráðsins um vöktun og mat á ástandi norðurslóða (Arctic Monitoring and Assessment Programme).