Vel heppnað málþing um ábyrgð, eftirlit og öryggi á norðurslóðum

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, ávarpar fundargesti. Mynd: Daria Gribovskis
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, ávarpar fundargesti. Mynd: Daria Gribovskis

Síðastliðinn fimmtudag fór fram opið málþing í Háskólanum á Akureyri um ábyrgð, eftirlit og öryggi á norðurslóðum þar sem sjónum var beint að samskiptum borgaralegra og hernaðarlegra aðila við leit og björgun. Varðberg – samtök um vestræna samvinnu og alþjóðamál, Norðurslóðanet Íslands, Háskólinn á Akureyri, Landhelgisgæsla Íslands og dómsmálaráðuneytið stóðu fyrir viðburðinum. Auk fundargesta í sal Háskólans á Akureyri fylgdust tæplega 400 manns með fundinum í streymi.

Dómsmálaráðherra ávarpaði fundargesti

Davíð Stefánsson formaður Varðbergs opnaði viðburðinn og í framhaldinu ávarpaði Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra fundargesti. Í erindi sínu lagði ráðherra áherslu á lykilhlutverk borgaralegra innviða fyrir almannavarnir, öryggi og áfallaþol Íslands og ítrekaði mikilvægi Landhelgisgæslunnar, en Landhelgisgæslan fagnar 100 ára afmæli í ár.

Í framhaldinu tók við metnaðarfull dagskrá þar sem sérfræðingar ræddu getu, samhæfingu og ábyrgð í tengslum við leit og björgun á norðurslóðum. Norðurheimskautið er í örri þróun og áhersla var lögð á hvernig Ísland og samstarfsríki geta í sameiningu tryggt öryggi svæðisins. Meðal viðfangsefna voru m.a. þróun nýrra siglingaleiða um norðurslóðir, staða almannavarna og björgunarsveita í breyttum heimi og fjarskiptakerfi okkar Íslendinga. Samstarfsaðilar Landhelgisgæslunnar frá Noregi og Kanada kynntu starf og skipulag við leit og björgun á krefjandi norðlægum svæðum þar sem mikilvægi alþjóðlegrar samvinnu og samhæfingar við leitar- og björgunarstarf fer sífellt vaxandi. Þá var rætt hvernig gervihnatta- og fjarskiptatækni umbreytir leit og björgunarstarfi á norðurslóðum. Samkeppni stórvelda og framtíðaráskoranir á tímum breytts öryggisumhvefis, nýrrar tækni, loftslagsbreytinga og aukinna siglingaumferða voru í brennidepli.

Erindi frá fjölbreyttum hópi sérfræðinga

Auk dómsmálaráðherra voru fyrirlesarar Auðunn F. Kristinsson, framkvæmdastjóri stefnumótunar, áætlanagerðar og þróunar aðgerða hjá Landhelgisgæslunni; Guðbrandur Örn Arnarsson, forstöðumaður aðgerðasviðs Slysavarnafélagsins Landsbjargar; Þorlákur Einarsson sérfræðingur á skrifstofu alþjóðapólitískra málefna í utanríkisráðuneytinu; og Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Fjarskiptastofu. Einnig ávörpuðu Antonio Rolla, verkefnastjóri hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins; Tore Hongset, samhæfingarstjóra leitar- og björgunaraðgerða hjá Sameiginlegu leitar- og björgunarstjórnstöðinni fyrir Norður-Noreg; og Kathye Nghiema, framkvæmdastjóri viðbragðssviðs kanadísku strandgæslunnar, fundargesti rafrænt.

Embla Eir Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Norðurslóðanets Íslands flutti lokaorð og Friðrik Þórsson, verkefnastjóri hjá Norðurslóðanetinu sá um fundarstjórn.

Móttaka í varðskipinu Þór við Akureyrarhöfn

Í framhaldi af ráðstefnunni var fundargestum boðið til móttöku um borð í varðskipinu Þór, flaggskipi Landhelgisgæslu Íslands, við Akureyrarhöfn. Þar ávarpaði Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor Háskólans á Akureyri, þátttakendur og fundargestum var að lokum boðið upp á veitingar og kynnisferð um varðskipið.

 

    

Ítarlegri frásögn og fleiri myndir frá viðburðinum má nálgast á vef Varðbergs.

Vel heppnað málþing Varðbergs um leitar- og björgunarstarf á norðurslóðum | Varðberg, samtök um vestræna samvinnu og alþjóðamál

MYNDIR frá málþingi Varðbergs um leit og björgun á norðurslóðum | Varðberg, samtök um vestræna samvinnu og alþjóðamál