Tekist á við þiðnun sífrera á Vestur-Grænlandi

Vestur-Grænland, apríl 2026. Mynd: Joan Nymand Larsen
Vestur-Grænland, apríl 2026. Mynd: Joan Nymand Larsen

Dagana 7.–14. apríl var Joan Nymand Larsen við vettvangsvinnu í Ilulissat við Diskóflóa á Vestur-Grænlandi ásamt tveimur samstarfsfélögum í ILLUQ-sífreraverkefninu  (https://illuq.eu/), þeim Leneisja Jungsberg og Peter Schweitzer. ILLUQ verkefnið fæst við þiðnun sífrera á norðurslóðum og beinir meðal annars sjónum að áhrifum sífreraþiðnunar á menningartengda þjónustu vistkerfa (e. cultural ecosystem services).

Sífreraþiðnun og menningartengd þjónusta vistkerfa

Þjónusta vistkerfa er hugtak sem lýsir ávinningi vistkerfa fyrir fólk og samfélög. Í stuttu máli vísar menningarleg þjónusta vistkerfa til þeirra óáþreifanlegu gæða sem fólk fær úr náttúrunni sem tengjast ekki beint efnislegri framleiðslu heldur upplifun, menningu og andlegum gildum.

Í nýliðinni vettvangsvinnu í Ilulissat sóttist rannsóknarteymið eftir því að skapa vettvang fyrir samtal við heimafólk um framtíðarsviðsmyndir fyrir svæðið í samhengi sífreraþiðnunar og örra breytinga á norðlægum slóðum. Efnt var til víðtæks samráðs í fjölbreyttu formi og kastljósinu beint að áhrifum þiðnunar í tengslum við ýmsa lykilþætti tengda menningarlegri þjónustu vistkerfa; til að mynda tómstundir og afþreyingu, útivist, menningarhefðir og samspil vinnu, menntunar og daglegs lífs. Sjónum var einnig beint að núverandi stjórnsýsluáskorunum í tengslum við öra uppbyggingu í Ilulissat.

Víðtækt samráð við heimafólk

Grundvallaþáttur í ILLUQ-verkefninu er sterk áhersla á nána samvinnu og samráð við heimafólk og rétthafa nærsamfélagsins sem býr yfir ríkulegri staðbundinni þekkingu og þekkingu frumbyggja. Á meðan dvölinni stóð efndi rannsóknarteymið til vinnustofa um ólíkar sviðsmyndir (scenarios of change) og rýnihóps, auk samráðs og samveru með Grænlendingum úti við, á sífrerasvæðum. Mögulegum framtíðarsviðsmyndum í samhengi loftslagsbreytinga var velt upp og tilheyrandi áhrifum þiðnunar á menningarlega þjónustu vistkerfa á sífrerasvæðum.

ILLUQ-rannsóknarverkefnið nálgast þá áhættu sem skapast vegna sífreraþiðnunar frá heildstæðu sjónarhorni einnar heilsu nálgunarinnar (One Health), þar á meðal með tilliti til losunar mengunarefna, hnignun innviða og breytingu á vistkerfum. Sérstök áhersla er lögð á menningarlega þjónustu vistkerfa til að skilja betur hvernig loftslagsbreytingar hafa áhrif á nærsamfélög og frumbyggjasamfélög og lífsviðurværi þeirra.

Stofnun Vilhjálms Stefánssonar er ein af aðildarstofnunum ILLUQ-verkefnisins sem er alþjóðlegt og þverfaglegt sífreraverkefni, styrkt af ESB og leitt af Alfred Wegener Institute for Polar and Marine Research (AWI).

ILLUQ: EU Horizon Europe, HORIZON-CL6-2023-ZEROPOLLUTION-01
Númer verkefnis: 101133587

Hér má lesa bloggfærslu um vettvangsvinnuna, skrifaða af Joan og Leneisja í Ilulissat, sem birt var á heimasíðu verkefnisins: https://illuq.eu/news/wp8-fieldwork-in-ilulissat-in-winter-2026