Opið málþing um leit og björgun á norðurslóðum 16. apríl

Fimmtudaginn 16. apríl standa Varðberg, Norðurslóðanetið, Landhelgisgæsla Íslands, dómsmálaráðuneytið og Háskólinn á Akureyri fyrir opnu málþingi þar sem sjónum verður beint að leit og björgun á norðurslóðum.

Viðburðurinn fer fram í stofu M101 í Háskólanum á Akureyri og í gegnum streymi á vef Varðbergs og í fjölmiðlum.

Leit og björgun á norðurslóðum er í hraðri þróun vegna aukinnar umferðar, breytts öryggisumhverfis og nýrrar tækni. Á þessu málþingi munu sérfræðingar ræða getu, samhæfingu og ábyrgð – og hvernig Ísland og samstarfsríki geta tryggt öryggi á einu af mest krefjandi svæðum heims.

Erindi halda meðal annars Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra; Auðunn Friðrik Kristinsson, forstöðumaður aðgerðarsviðs Landhelgisgæslu Íslands; Antonio Rolla, verkefnastjóri hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins; Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Fjarskiptastofu; Guðbrandur Örn Arnarsson, aðgerðasvið Slysavarnafélagsins Landsbjörg; Embla Eir Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Norðurslóðanets Íslands; og Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor Háskólans á Akureyri.

Nánari og uppfærð dagskrá verður birt á næstu dögum.

Skráning á fundinn er nauðsynleg og er sætafjöldi takmarkaður.
Hægt er að skrá sig hér: https://forms.office.com/r/0Tg36He2fU

Háskólinn á Akureyri | Ábyrgð, eftirlit og öryggi á norðurslóðum: Tengsl borgaralegra og hernaðarlegra þátta

Facebook | Ábyrgð, eftirlit og öryggi á norðurslóðum: Tengsl borgaralegra og hernaðarlegra þátta