Maria Ackrén og Helga Númadóttir hjá Stofnun Vilhjálms Stefánssonar tóku á dögunum þátt í UArctic Congress í Færeyjum ásamt fjölmennum hópi samstarfsfólks frá HA og norðurslóðastofnunum á háskólasvæðinu.
Um er að ræða stærstu vísindaráðstefnu um norðurslóðir sem haldin hefur verið til þessa og jafnframt stærstu ráðstefnu sem farið hefur fram í Færeyjum. Hátt í 1.400 þátttakendur frá um 40 löndum sóttu þingið.
UArctic Congress er haldið annað hvert ár í því ríki sem fer með formennsku í Norðurskautsráðinu hverju sinni, en Konungsríkið Danmörk (Grænland, Færeyjar, Danmörk) tók við formennskukeflinu af Noregi 12. maí 2025. Þema ráðstefnunnar fylgir forgangsmálefnum formennskuríkisins og voru samfélög á norðurslóðum, loftslagsbreytingar, sjálfbær efnahagsþróun og vöktun lífbreytileika í forgrunni. Þá var staðan í alþjóðamálum og vaxandi áhugi á norðurslóðum í kastljósinu. Samhliða UArctic Congress efndi Konungsríkið Danmörk auk þess til sérstakrar ráðstefnu um málefni hafsins (Ocean Connectivity Conference).
Mikilvægt áherslusvið í samvinnu á norðurslóðum er að efla það samstarf norrænna háskóla sem stuðlað getur að fræðslu og rannsóknum á þeim ferlum í samfélagi og náttúru er tengjast sjálfbærri þróun. Háskóli norðurslóða (e. UArctic) sem var stofnaður árið 2001 byggir á slíkum grunni og hefur með tímanum orðið mikilvægasta samstarfsnet háskóla og rannsóknastofnana á norðurslóðum. Norðurlöndin öll eiga aðild að undirbúningsstarfinu, ásamt háskólastofnunum í Bandaríkjunum, Kanada og Rússlandi, auk fulltrúa frumbyggjasamtaka á norðurheimskautssvæðunum.
Bæði Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og Háskólinn á Akureyri eru meðal stofnaðila Háskóla norðurslóða og hafa tekið virkan þátt í starfinu frá upphafi. SVS hefur til að mynda hannað tvö námskeið í norðurslóðafræði sem kennd eru við Háskólann á Akureyri, sem íslenskt og vestnorrænt framlag til UArctic. Auk fimm annarra mynda námskeiðin námsbraut í norðurslóðafræðum (Circumpolar Studies) við UArctic sem nemendur aðildastofnana háskólanetsins eiga kost á að taka. Kennsla í norðurslóðafræði við Háskólann á Akureyri hófst árið 2004 sem hluti af þessu prógrammi en það var dr. Jón Haukur Ingimundarson hjá Stofnun Vilhjálms Stefánssonar sem hafði forgöngu um þróun námsleiðarinnar í samvinnu við leiðandi sérfræðinga í norðurslóðafræðum við aðildastofnanir UArctic.
Hátt í 200 málstofur og svipaður fjöldi veggspjaldakynninga vísindafólks fóru fram á nýliðnu UArctic í Færeyjum en auk fræðilegrar dagskrár bauð þingið einnig upp á fjölbreytta menningarviðburði sem gáfu gestum tækifæri til að kynnast færeysku samfélagi og menningu. Til þess að bjóða þátttakendur velkomna bauð færeyska flugfélagið Atlantic Airwaves til móttöku á færeyska þjóðarleikvanginum kvöldið áður en ráðstefnan hófst. Á opnunarviðburðinum kom söngkonan Eivør fram og í miðbæ Þórshafnar var haldin sérstök götuhátíð fyrir ráðstefnugesti með færeyskum mat og tónlistarflutningi. Ráðstefnunni lauk svo með hefðbundnum færeyskum keðjudansi og lokamóttöku í viðburðamiðstöðinni við Tjarnir í Hoyvík þar sem ráðstefnan fór fram.
Landslagið á alþjóðavettvangi hefur gjörbreyst síðan Háskóli norðurslóða var formlega stofnaður árið 2001. Mikilvægi þverfræðilegrar og fjölþjóðlegrar samvinnu þvert á landamæri til skilnings og lausnar á vandamálum sem teygja sig yfir landamæri vísindagreina og þjóðríkja vex stöðugt og því var virkilega ánægjulegt að sameinast góðum félögum og framúrskarandi vísindafólki vítt og breitt frá norðurslóðum í Færeyjum og taka þátt í uppbyggilegri samvinnu og samtölum um framtíð norðurslóða.
Hér má nálgast frétt Háskólans á Akureyri: Fjölmenn þátttaka frá HA á stærstu vísindaráðstefnu um norðurslóðir sem haldin hefur verið til þessa | Háskólinn á Akureyri
Fleiri myndir á Facebook síðu háskólans: Fjölmennur hópur frá HA og... - Háskólinn á Akureyri | Facebook
