Sjálfbærni heiðruð í Háskólanum á Akureyri

Umhverfisráð Háskólans á Akureyri bauð til sjöttu sjálfbærniráðstefnu háskólans síðastliðinn föstudag. Líkt og á síðasta ári var viðburðurinn haldinn í samvinnu við Stofnun Vilhjálms Stefánssonar. 

Forseti Íslands setti ráðstefnuna

Halla Tómasdóttir forseti Íslands setti ráðstefnuna og ávarpaði gesti. Aðalfyrirlesari var Jukka Heinonen prófessor við Háskóla Íslands með erindið „Affluence and the climate-sustainability illusion in the Nordics.“ Í framhaldinu tók við þétt dagskrá öflugra innlendra og alþjóðlegra erinda sem nálguðustu sjálfbærni frá fjölbreyttum sjónarhornum.

Sjálfbærniverðlaun Vilhjálms Stefánssonar afhent

Meðal dagskrárliða var afhending Sjálfbærniverðlauna Vilhjálms Stefánssonar að andvirði 40.000 kónur. Áslaug Ásgeirsdóttir afhenti verðlaunin við sérstaka athöfn, en viðurkenning er veitt fyrir framúrskarandi verkefni stúdenta á sviði sjálfbærni. Þetta er í annað sinn sem viðurkenningin er veitt og í ár var það Erna Óðinsdóttir sem hlaut verðlaunin fyrir bakkalár ritgerð sína „Úrgangur sem auðlind: Tilraunaverkefni um forflokkunarlager textíls.“ Á síðasta ári var það Ísold Egla Guðjónsdóttir sem hlaut viðurkenningu fyrir lokaverkefni sitt „Redirecting phosphorus from wastewater: Screening for phosphate accumulating bacteria from clam guts for potential wastewater remediation applications.“

Við hvetjum nemendur sem eru að ljúka við lokaritgerð í ár eða á næsta ári um viðfangsefni tengd sjálfbærni eindregið til þess að hafa í huga að sækja um verðlaunin í byrjun næsta árs, en þau verða afhent á sjöundu Sjálfbærniráðstefnunni á vorönn 2027.

Háskólinn á Akureyri hlýtur Grænfánann í sjötta sinn

Í hádegishléinu afhenti fulltrúi Landverndar háskólanum jafnframt Grænfánann í sjötta sinn við formlega athöfn, en Háskólinn á Akureyri hlaut Grænfánann fyrstur allra íslenskra háskóla árið 2013. Grænfánaverkefnið er alþjóðleg viðurkenning sem veitt er stofnunum sem sýna fram á raunverulega og sjálfbæra skuldbindingu í umhverfismálum, en Sameinuðu þjóðirnar hafa nefnt verkefnið sem helsta innleiðingartæki fyrir menntun til sjálfbærni í heiminum.

Við þökkum öllum sem voru með, í persónu eða rafrænt, hjartanlega fyrir fróðlegan og hvetjandi dag og hlökkum til að sjá ykkur aftur að ári!