Sendifulltrúi Grænlands á Íslandi, Karsten Peter Jensen, heimsækir Akureyri fimmtudaginn 7. maí. Karsten mun heimsækja Háskólann á Akureyri og norðurslóðastofnanir á háskólasvæðinu.
Klukkan 13:00 mun hann halda opinn fyrirlestur sem ber yfirskriftina Kalaallit Nunaat / Greenland: Political History to Present-Day, by the Head of Greenland Representation in Iceland.
Grænland hefur verið í brennidepli heimsmálanna að undanförnu og við hvetjum öll sem hafa áhuga á sögu Grænlands og stöðu í alþjóðamálum til þess að nýta tækifærið og hlýða á fyrirlestur sendifulltrúa Grænlands á Íslandi.
Viðburðurinn fer fram á ensku í stofu M101.
Öll velkomin.