Háskólinn á Akureyri hlaut á dögunum styrk úr samstarfssjóði Íslands og Noregs, Arctic Research and Studies - Norðurslóðafræði, sem er í umsjón Rannís og veitir sóknarstyrki til að styrkja samstarf á milli Íslands og Noregs á sviði norðurslóðafræða.
Styrkurinn kemur til með að fjármagna þróun alþjóðlegs verkefnis sem miðar að því að rannsaka öryggi á norðurslóðum og viðnámsþrótt samfélaga með því að skoða áhrif notkunar og þróunar tækni með tvíþætt notagildi á svæðinu.
Adam Fishwick, rannsóknarstjóri við Háskólann á Akureyri, mun stýra verkefninu í samstarfi við Tom Barry, deildarforseta Hug- og félagsvísindasviðs og starfandi forstöðumann Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar, ásamt Katharinu Glaab við University of Life Sciences í Noregi.
Frekar umfjöllun um styrkveitinguna má nálgast í frétt Háskólans á Akureyri [hér]