Maria Ackrén hefur verið ráðin sem forstöðumaður Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar við Háskólann á Akureyri. Maria tekur við stöðunni 1. maí næstkomandi. Dr. Níels Einarsson var forstöðumaður stofnunarinnar frá því hún var sett á laggirnar árið 1998 fram að sameiningu hennar við háskólann árið 2025, en þá tók Tom Barry, forseti hug- og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri, við sem starfandi forstöðumaður.
Maria gegnir nú stöðu prófessors í stjórnmálafræði við Ilisimatusarfik (Háskólann á Grænlandi) í Nuuk, en hún lauk doktorsprófi í stjórnmálafræði frá Åbo Akademi-háskóla árið 2009. Hún býr yfir víðtækri fræðilegri reynslu ásamt þekkingu og reynslu af stjórn akademískra eininga og mótun rannsóknarstefnu.
Maria er meðlimur í fjölmörgum alþjóðlegum og norrænum rannsóknanetum og leiðir m.a. alþjóðleg samtök félagsvísindafólks sem stundar rannsóknir á norðurslóðum (International Arctic Social Sciences Association, eða IASSA), sem kjörinn forseti þeirra samtaka. Sem forseti IASSA kemur hún fram sem áheyrnarfulltrúi fyrir Norðurskautsráðið, og mun leiða félagsvísindafólk saman á ICASS XII – 12. alþjóðaþingi félagsvísinda norðurslóða (International Congress of Arctic Social Sciences) sem fram fer í Nuuk í maí 2027.
Maria hefur leitt umfangsmiklar rannsóknir sem m.a. tengjast velferð íbúa norðurslóða og samfélögum þeirra, alþjóðlegum stjórnmálum og öðrum þverfaglegum viðfangsefnum. Meðal nýlegra verka hennar má nefna fræðiritið Foreign Policy in Greenland: 20 Years of Development sem Routledge gaf út á síðasta ári.
Á löngum og fjölbreyttum ferli hefur hún gegnt störfum sem deildarforseti, rannsóknastjóri, prófessor og gestafræðimaður við háskóla víða á Norðurlöndum, í Evrópu og Norður-Ameríku. Síðan 2011 hefur hún starfað hjá Háskólanum á Grænlandi en þar hefur hún verið deildarforseti, byggt upp doktorsnám og gegnt ýmsum trúnaðar- og stjórnunarstörfum við skólann. Maria hefur auk þess gegnt stöðu rannsóknastjóra við Nasiffik, rannsóknasetur Háskóla Grænlands á sviði utanríkis- og öryggismála, frá stofnun þess árið 2021.
Við bjóðum Mariu hjartanlega velkomna til Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar!
Umfjöllun Háskólans á Akureyri um ráðningu Maria Ackrén má finna [hér]