Marco Lonero er meistaranemi í umhverfis- og landverkfræði við Tækniháskólann í Bari á Ítalíu. Hann hefur mikinn áhuga á fjarkönnun (remote sensing) og var í starfsnámi við SCIDRONES, grískt nýsköpunarfyrirtæki sem stendur fyrir umhverfisrannsóknum. Þar kynntist hann ICEBERG verkefninu, bauðst þátttaka í því og tengdi við meistaraverkefni sitt sem ber heitið Integrating UAV Mapping and Citizen Science for Arctic Marine Litter Assessment og er unnið undir handleiðslu Dr. Apostolos Papakostaninou sem er einn af rannsakendum ICEBERG verkefnisins
Lýðvísindi og gagnaöflun með drónum
Meginmarkmið Marco meðan á Íslandsdvölinni stóð voru tvennskonar: Annarsvegar að nota dróna til að mæla og greina rusl á strandsvæðum og hinsvegar að efna til samstarfs við sjálfboðaliða á svæðinu sem höfðu áhuga á að stunda lýðvísindi (e. citizen science) og taka þátt í rannsókninni með því að tileinka sér hagnýta færni á borð við að fljúga drónum og greina rusl á ströndum. Lærðu þátttakendur einnig að hlaða söfnuðum gögnum upp í CMLO (Coastal Marine Litter Observatory) og túlka niðurstöðurnar. Að lokum var gengið svo frá að hópurinn geti haldið rannsóknunum og gagnaöfluninni áfram í framtíðinni.
Dýrmæt reynsla
Marco hafði ekki starfað áður á sviði félagsvísinda, þar sem bakgrunnur hans er fyrst og fremst úr tæknifræði. Reynslan úr ICEBERG var honum því dýrmæt, að eigin sögn, þar sem hann áttaði sig á að „breytingar á hegðun og aðgerðum verða aðeins þegar vísindi og fólk mætast“ og að þátttaka í verkefninu var „frábært tækifæri fyrir mig til að víkka þekkingu mína og sýn, mynda verðmæt tengsl við sérfræðinga verkefnisins auk hinna einstöku sjálfboðaliða sem tóku þátt“.
Við þökkum Marco fyrir komuna og gott samstarf.
