Föstudaginn 10. apríl næstkomandi mun hin árlega Sjálfbærniráðstefna Umhverfisráðs Háskólans á Akureyri fara fram. Viðburðurinn verður haldinn í samvinnu við Stofnun Vilhjálms Stefánssonar annað árið í röð og af því tilefni verða sjálfbærniverðlaun Vilhjálms Stefánssonar að andvirði 40.000 þúsund krónur veitt í annað sinn.
Óskað er eftir því að nemendur sem
sæki um verðlaunin með því að senda inn umsókn. Það er gert með því að senda inn eintak af lokaritgerð fyrir 10. mars 2026 á netfangið yvonne@unak.is. Athugið að lokaritgerðin þarf ekki að vera fullunnin; þannig gefst nemendum sem útskrifast árið 2026 einnig kostur á að taka þátt ef þeir hafa fyrstu drög að lokaritgerð sinni tilbúin fyrir frestinn. Dómnefnd skipuð fulltrúum Umhverfisráðs HA og Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar mun fara yfir allar innsendar umsóknir. Ætlast er til að verðlaunahafi haldi u.þ.b. 10 mínútna munnlega kynningu um verkefnið sitt á 6. Sjálfbærniráðstefnunni í Háskólanum á Akureyri þann 10. apríl þar sem verðlaunaafhendingin fer fram. Hægt er að halda kynninguna í persónu eða í gegnum netið.
Fyrir frekari upplýsingar, vinsamlega hafið samband við yvonne@unak.is, stjórnarformann Umhverfisráðs HA.