Þann 7. maí síðastliðinn fengu Háskólinn á Akureyri og norðurslóðastofnanirnar á háskólasvæðinu góða heimsókn frá sendifulltrúa Grænlands í Reykjavík, Karsten Peter Jensen. Með í för voru Birta Jóhannesdóttir ritari sendiskrifstofunnar og Malu Hendriksen, starfsnemi.
Sendinefndin heimsótti skrifstofur CAFF (vinnuhóp Norðurskautsráðsins um verndun lífríkis á norðurslóðum) og PAME (vinnuhóp Norðurskautsráðsins um verndun hafsvæða); Alþjóðlegu norðurskautsvísindanefndina (IASC); Norðurslóðanetið; og Stofnun Vilhjálms Stefánssonar. Auk þess tóku þau þátt í fjölmennum samræmingarfundi um málefni norðurslóða í háskólanum. Fundirnir eru haldnir aðra hvora viku til þess að skapa opinn samtals- og samstarfsvettvang fyrir alla þá sem vinna að norðurslóðamálefnum á háskólasvæðinu, þar sem öflugt þekkingarsetur um málefni norðurslóða hefur starfað um árabil.
Eftir hádegisverð hélt Karsten Peter Jensen fyrirlestur í sal háskólans undir yfirskriftinni Kalaallit Nunaat / Greenland: Political History to Present-Day, by the Head of Greenland Representation in Iceland.
Þar sagði hann fundargestum frá stöðu Grænlands á alþjóðasviðinu, meðal annars í ljósi yfirlýsts áhuga Bandaríkjaforseta um yfirráð á eyjunni. Þá rakti hann pólitíska sögu Grænlands og sagði til að mynda frá því hvernig Grænland varð hluti af Evrópusambandinu (þá Evrópubandalaginu) ásamt Danmörku árið 1973, þrátt fyrir að meirihluti Grænlendinga hefði kosið gegn því, og hvernig Grænland varð í kjölfarið fyrsta landið til að yfirgefa sambandið árið 1985 eftir að Grænland öðlaðist heimastjórn 1979.
Þá ræddi Karsten einnig fyrirkomulag sjálfstjórnarlaganna frá 2009, efnahagsmál á Grænlandi, tækifæri í ferðaþjónustu og námuvinnslu, og utanríkisþjónustu Grænlands. Í samhengi utanríkismála ítrekaði hann mikilvægi skipunar Kenneth Høegh sem sendiherra norðurslóðamála og formanns embættismannanefndar Norðurskautsráðsins þegar Konungsríkið Danmörk tók við forystu Norðurskautsráðsins á síðasta ári, en með skipuninni varð hann fyrsti sendiherrann frá Grænlandi.
Að lokum sagði hann frá þeim verkefnum sem sendiskrifstofa Grænlands í Reykjavík fæst við. Í kjölfarið hitti Karsten nemendur í heimskautarétti áður en hann fór á fund Ásthildar Sturludóttur, bæjarstjóra.
Gaman er að segja frá því að Maria Ackrén, nýr forstöðumaður Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar, var kennari Karsten við Ilisimatusarfik (Háskólann á Grænlandi) og leiðbeinandi hans við skrif lokaverkefnis til MA gráðu. Heimsóknin bauð því upp á góða endurfundi auk mikilvægra umræðna um styrkleika þekkingarmiðstöðvar norðurslóða á Akureyri og við hlökkum til að halda áfram að efla hið góða samband milli Grænlands og Akureyrar.


