Heimsókn frá nýjum SAO og tengiliðahópi Stjórnarráðsins

Frá vinstri: Óli Halldórsson, Agnar Bragi Bragason Jón Haukur Ingimundarson, Þorlákur Einarsson, Hly…
Frá vinstri: Óli Halldórsson, Agnar Bragi Bragason Jón Haukur Ingimundarson, Þorlákur Einarsson, Hlynur Guðjónsson, Rósa Guðrún Erlingsdóttir, Helga Númadóttir og Sveinbjörg Smáradóttir

Stofnun Vilhjálms Stefánssonar fékk nýverið heimsókn frá Hlyni Guðjónssyni, nýjum fulltrúa Íslands í embættismannanefnd Norðurskautsráðsins (SAO - Senior Arctic Official) og tengiliðahópi Stjórnarráðsins um norðurslóðir. Í hópnum voru fulltrúar frá fjórum ráðuneytum: Forsætisráðuneytinu, Utanríkisráðuneytinu, Atvinnuvegaráðnueytinu og Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu.

Jón Haukur, Helga og Sveinbjörg tóku á móti gestunum og ræddu áríðandi málefni norðurslóða og rannsóknastarf stofnunarinnar. Hlynur sem áður var sendiherra Íslands í Kanada tók við stöðu fulltrúa Íslands í embættismannanefnd Norðurskautsráðsins í síðasta mánuði og var heimsóknin liður í að kynnast og kynna norðurslóðastarfsemina sem fram fer á háskólasvæðinu. Auk Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar heimsótti hópurinn Háskólann á Akureyri, Alþjóðlegu norðurskautsvísindanefndina (IASC), CAFF (vinnuhóp Norðurskautsráðsins um verndun lífríkis á norðurslóðum), PAME (vinnuhóp Norðurskautsráðsins um verndun hafsvæða) og Norðurslóðanetið sem skipulagði heimsóknina.

Það var ánægjulegt að fá heimsókn frá fulltrúum svo margra ráðuneyta í einu og við þökkum fyrir komuna og góðar umræður.