Dr. Romain Chuffart á upphafsfundi BioTransform

Dr. Romain Chuffart Nansen prófessor við SVS og HA sótti upphafsfund fyrir BiodivTransform fyrir hönd Stofnunar Vilhjálms í Ponta Delgada á Azor Eyjum 21.-30. apríl sl.

BiodivTransform samanstendur af 35 þverfaglegum rannsóknarverkefnum sem munu næstu þrjú árin fjalla um mikilvægi og verndun vistkerfa á tímum mikilla breytinga í heiminum. Verkefnin eru fjármögnuð af Biodiversa+ sem er evrópskt samstarf um líffræðilega fjölbreytni og framkvæmdastjórn ESB (European Commission). Dr. Romain Chuffart frá SVS og Corine Wood-Donnelly, prófessor við Nord University sem leiðir Vinnupakka 3 hjá ICE BRIDGE, voru þar fulltrúar ICE BRIDGE – Bridging Ice Climate Technologies and Governance for Biodiversity in the Arctic. Romain er þar aðalrannsakandi og samræmingaraðili verkefnisins (overall project co-ordinator).

Viðburðurinn hófst með opnum fundum undir heitinu Biodiversity and Transformative Change: Science-Policy Pathways for Europe þar sem Karen O´Brien prófessor og ein leiðenda IPBES Transformative Change Assessment hélt inngangsræðu. Mátti þar einnig sjá framlög frá fulltrúum framkvæmdarstjórnar ESB og Evrópusamningsins um líffræðilega fjölbreytni ( European Convention on Biological Diversity). Á öðrum degi voru verkefnin 35 kynnt hvert fyrir sig og kynnti Dr. Romain Chuffart ICE BRIDGE verkefnið.

Síðasta daginn voru haldnar vinnustofur þar sem þátttakendur hinna mismunandi verkefna hófust handa við að kortleggja mögulega skörun verkefna og tækifæri til samstarfs og að endingu farið í sameiginlega vettvangsferð að náttúruperlunni við Sete-Cidades gíginn.

ICE BRIDGE verkefnið

ICE BRIDGE verkefnið, í umsjón Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar ásamt sex öðrum stofnunum úr fimm mismunandi löndum mun þróa ramma fyrir stjórnun sem einkennist af fyrirsjáanleika, fyrirhyggju og réttlæti í aðgerðum við að endurheimta hafís á norðurslóðum. Nú er tæknin komin á það stig að það styttist í vettvangstilraunir við að þykkja ís og auka endurkast hans en þó er ekki enn til staðar heildstætt alþjóðlegt regluverk um slíkar framkvæmdir né nægileg vitneskja um hugsanlegar afleiðingar af slíkum framkvæmdum á vistkerfi. ICE BRIDGE sameinar reglugerðir, loftslagslíkön, vistfræði og umhverfissiðfræði með hliðsjón af Kunming-Montréal stefnu Sameinuðu þjóðanna um verndun líffræðilegrar fjölbreytni og ákvæði samnings SÞ um líffræðilega fjölbreytni frá 1992 um aðgæslu í þróun tæknilausna í loftslagsmálum.