Norræn-kínversk norðurslóðaráðstefna

Norræn-kínversk norðurslóðaráðstefna

Vakin er athygli á því að auglýst er eftir erindum á fjórðu Norrænu-kínversku norðurslóðaráðstefnuna sem haldin verður við Norðurslóðamiðstöðina í Rovaniemi, Finnlandi, 6.-9. júní nk., sjá auglýsingu í viðhengi. Ráðstefnan mun fjalla um sjálfbærni á norðurslóðum og áhrif alþjóðavæðingar. Frestur til að senda inn ágrip að erindi er 25. febrúar nk.og þau má senda til:

Malgorzata Smieszek, Arctic Centre: malgorzata.smieszek@ulapland.fi

Deng Beixi, CNARC: dengbeixi@pric.org.cn    

 

Nánari upplýsingar um ráðstefnuna má finna á eftirfarandi vefslóðum: www.cnarc.info og www.arcticcentre.org.

Frekari upplýsingar veitir Þorsteinn Gunnarsson hjá Rannís (thorsteinn.gunnarsson@rannis.is), sími 515-5800.