Laus staða Nansen gestaprófessors

Háskólinn á Akureyri hefur auglýst eftir nýjum Nansen gestaprófessor við HA skólaárið 2017-2018. Staðan  er veitt til eins árs í senn framúrskarandi vísindamanni sem starfar að málefnum er tengjast lagalegum, hagrænum, félagslegum og náttúrufarslegum aðstæðum á norðurslóðum. Almennt þurfa umsækjendur um stöðuna að hafa lokið doktorsgráðu (eða hafa sambærilega reynslu) og hafa traustan akademískan bakgrunn á sviði lagalegra málefna og sjálfbærrar þróunar á norðurslóðum. Einnig er krafist reynslu af þverfaglegu starfi er lýtur að hinu flókna samspili mannlegs samfélags og umhverfisins og brýnt er að umsækjendur búi yfir góðri samskiptahæfni og félagslegri færni. Þá er reynsla af rannsóknastarfi varðandi málefni norðurslóða og af þátttöku í alþjóðlegum rannsóknarteymum nauðsynleg, sem og skjalfest færni til að afla rannsóknarstyrkja.

Sjá auglýsingu um stöðuna

Sjá nánari upplýsingar um Nansen gestaprófessorsstöðuna á vefsíðu Háskólans á Akureyri.