Fagstjóri meistaranáms: Sjávarbyggðafræði

Háskólasetur Vestfjarða leitar að kraftmiklum einstaklingi í krefjandi starf fagstjóra á sviði sjávarbyggðafræða. Við Háskólasetrið er kennd alþjóðleg, þverfagleg námsleið á meistarastigi í haf- og strandsvæðastjórnun (Coastal and Marine Management), með um 40-50 virka meistaranema ár hvert, og nú bætist við samsvarandi námsleið í sjávarbyggðafræði (Coastal Communities and Regional Development). Báðar námsleiðirnar eru í samstarfi við Háskólann á Akureyri. Umsóknarfrestur rennur út 13. apríl 2018. Sjá nánar hér.