Climate Change in Northern Territories

Climate Change in Northern Territories: óskað eftir útdráttum (25.01.2013)
Climate Change in Northern Territories - Sharing Experiences, Exploring New Methods and Assessing Socio-Economic Impacts: ESPON verkefnið ENECON og NRF (Northern Research Forum eða Rannsóknaþing norðursins munu halda alþjóðlega ráðstefnu undir þessu heiti í Háskólanum á Akureyri 22. - 23. ágúst 2013.

Markmiðið er að beina athyglinni að breytingum sem eru að eiga sér stað, að fyrirliggjandi vitneskju og þörfinni á rannsóknum í norðurhluta Evrópu og á heimskautasvæðinu og áskorunum sem felast í því að hagnýta vitneskju sem fæst með rannsóknum.

Hugmyndin er að ráðstefnan muni leiða saman rannsakendur sem hafa svipaðan bakgrunn en sem hafa verið að beina athyglinni að mismunandi viðfangsefnum og notað mismunandi aðferðafræði. Hagsmunaaðilar, stjórnmálamenn og aðrir sem koma að stefnumótun eru einnig meðal markhópa ráðstefnunnar.

Frestur til að skila inn útdráttum er 28. febrúar 2013. Útdrætti má senda á netfangið  nrf@unak.is. Skráning á ráðstefnuna hefst 1. apríl 2013.

Nánari upplýsingar um ráðstefnuna má finna á vefsvæðum ENECON og NRF.