Ráðstefna: Sjávartengd ferðaþjónusta á norðurslóðum

Ráðstefna: Sjávartengd ferðaþjónusta á norðurslóðum (20.03.2013)

Ráðstefna og vinnusmiðjur þar sem athyglinni er beint að sjávartengdri ferðaþjónustu, mannlífi og umhverfi á norðurslóðum verður haldin í Háskólanum á Akureyri 18.-19. júní 2013. Ráðstefnan er skipulögð af Stofnun Vilhjálms Stefánssonar í samvinnu við RHA, NORA, Rannsóknamiðstöð ferðamála, Norsk sjømatsenter og Íslenska vitafélagið. Sjávartengd ferðaþjónusta nýtur sífellt meiri vinsælda og tekur á sig margbreytilegar myndir. Sumir ferðamenn vilja kynnast mannlífi sjávarplássa, upplifa náttúruna, þögnina, skoða fugla og sel og renna fyrir fisk á friðsælum firði. Aðrir vilja spennu hraðbátsins, fara á brimbretti, sjóskíði og kafa, eða leigja sér bát og láta reyna á eigin kunnáttu. Svo eru þeir sem ferðast í hópum frá höfn til hafnar og frá landi til lands á risavöxnum skemmtiferðaskipum.

Hvernig samrýmist þetta menningararfinum, samfélagsþróun, mannlífi, sjálfbærni, fiskveiði- og umhverfisstefnu þjóða norðursins? Hvernig geta þjóðir norðursins unnið saman á þessu sviði og eiga þessir ólíku þættir ferðaþjónustunnar einhvern samstarfsflöt? Á ráðstefnunni verður fjallað um þessar áskoranir og unnið í hópum til að velta upp enn fleiri spurningum.

 Í vinnusmiðjum verður m.a. rætt um:
       þróun sjávartengdrar ferðaþjónustu í Noregi, Íslandi, Grænlandi og Færeyjum
       tækifæri og ógnir, sjálfbærni og umhverfi – áhrif sjávartengdrar ferðaþjónustu og ímynd norðursins
       á hvaða sviðum við getum unnið saman

Farið verður í vettvangskönnun þar sem ferðaþjónustufyrirtæki og söfn verða skoðuð.

Sjá  dagskrá China-Nordic Arctic Cooperation Symposium.
Ráðstefnan er öllum opin en vegna skipulagningar er nauðsynlegt að skrá þátttöku.
Skráningarfrestur: 10. maí 2013

Ráðstefnugjald: 12.000 kr.
Ráðstefnuskráning og hótelbókanir (takmarkað hótelpláss):     conference@aktravel.is, sími 4600600

Nánari upplýsingar veitir Sigurbjörg Árnadóttir:    sibba@svs.is, sími 8648966.