|
Heim
Viðburðir
Aðsetur Norðurlandsdeildar Félags Sameinuðu þjóðanna á
Íslandi
Skrifstofa
NRF
Miðstöð
NABO
á
Íslandi
Háskóli
norðurslóða
Tenglar
English Version
Stofnun Vilhjálms
Stefánssonar
Borgum við Norðurslóð
600 Akureyri
Sími 460 8980
Bréfasími 460 8989 |
Um
Stofnun Vilhjálms Stefánssonar
Stofnun Vilhjálms Stefánssonar á Akureyri er íslensk
norðurslóðastofnun sem starfar samkvæmt
lögum nr. 81 frá 26. maí 1997.
Stofnuninni er ætlað er innlent og alþjóðlegt
hlutverk viðvíkjandi rannsóknum, upplýsingamiðlun,
ráðgjöf og samvinnu á sviði sjálfbærrar
þróunar og umhverfismála á norðurslóðum.
Verkefni stofnunarinnar tengjast í
áherslu á þverfaglega og fjölþjóðlega
umfjöllun um fræðilegar og hagnýtar lausnir á
viðfangsefnum sem sérstaklega tengjast norðurslóðum. Í
starfi stofnunarinnar er lögð áhersla á
að ekki sé vænlegt að slíta náttúruvernd
úr samhengi við náttúrunýtingu eða
þá hagsmuni sem tengjast þeirri viðleitni samfélaga
að sjá sér farborða.
Líffræðileg fjölbreytni er mikilvæg en mannvist
á norðurslóðum snýst ekki minnst um varðveislu
menningarlegrar fjölbreytni og möguleika smárra samfélaga
til að lifa í samræmi við eigið gildismat.
Íslendingum er nauðsynlegt að þekkja til áforma
og væntinga alþjóðasamfélagsins sem hefur
svo mikil áhrif á möguleika okkar og afkomenda okkar.
Stofnun Vilhjálms Stefánssonar hefur hlutverki að gegna
við öflun og miðlun slíkrar þekkingar.
Stofnunin heyrir undir
umhverfisráðuneytið
og hóf haustið 1998 starfsemi í húsnæði
Háskólans á Akureyri við Norðurslóð. Í október 2004 var
stofnunin flutt í Borgir, nýtt húsnæði á háskólalóðinni.
Starfsfólk og vísindafélagar
Samvinnunefnd um
málefni norðurslóða
Bókasafn
Minningarfyrirlestrar
Farandsýning
|