|
Fréttir

Arctic Social Indicators II: kynning á skýrslu
(07.0.2013)
ASI-II skýrslan
verður kynnt á
ráðherrafundi Norðurskautsráðsins
þann 15. maí 2013 í Kiruna í Svíþjóð.
Skýrslan verður gefin út í prentaðri útgáfu og á vefnum í kringum 10.
júní 2013. Skrifstofa ASI er við Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og
skýrslan er unnin undir stjórn Dr. Joan Nymand Larsen.
Fréttabréf SDWG (07.0.2013)
Sustainable Development Working Group (SDWG) hefur gefið út
fréttabréf aprílmánaðar.
2013
Arctic Energy Summit: skil á úrdráttum (18.04.2013)
Frestur til að senda úrdrátt fyrir 2013 Arctic Energy Summit hefur verið
framlengdur til 30. apríl 2013, en hægt er að senda inn tillögur að
fyrirlestrum, vinnustofum og pallborðsumræðum. 2013 Arctic Energy Summit
er þriggja daga þverfagleg ráðstefna á sviði orkumála og rannsókna á
Norðurslóðum, sem áætlað er að allt að fimmhundruð alþjóðlegir
viðskiptafræðingar, vísindamenn, stjórnendur, stefnumótendur,
orkusérfræðingar og stjórnmálaleiðtogar muni sækja á Akureyri dagana
8.-10. október 2013.
Nánari upplýsingar má finna
hér og á
vefsíðu ráðstefnunnar eða með tölvupósti
aen@institutenorth.org.
Málstofa: Health and Well Being in Arctic Regions
(10.04.2013)
Málstofa um heilbrigðismál á norðurslóðum verður haldin í Háskólanum á
Akureyri
þriðjudaginn
30. apríl 2013 í stofu M-101, kl.
13:00 – 17:45. Málstofan fer fram á ensku. Allir velkomnir!
Sjá
nánari upplýsingar.
Laus staða: Postdoctoral Fellow in Arctic Governance and Indigenous
Innovation
(02.04.2013)
Við Háskólann í
Tromsø er laus rannsóknastaða (Postdoctoral Research Fellow) til þriggja
ára. Staðan tengist Centre for Sami Studies.
Nánari upplýsingar má finna
hér og hjá Else Grete Broderstad,
else.g.broderstad@uit.no,
sími +47 7764 6908 og Hildegunn Bruland,
hildegunn.bruland@uit.no,
sími +47 7764 5535.
Ráðstefna: Sjávartengd ferðaþjónusta á
norðurslóðum (20.03.2013)
Ráðstefna og vinnusmiðjur þar sem athyglinni er beint að
sjávartengdri ferðaþjónustu, mannlífi og umhverfi á norðurslóðum
verður haldin í
Háskólanum á Akureyri 18.-19. júní 2013.
Ráðstefnan er skipulögð af Stofnun Vilhjálms Stefánssonar í samvinnu við
RHA,
NORA,
Rannsóknamiðstöð
ferðamála,
Norsk sjømatsenter og
Íslenska vitafélagið.
Sjávartengd ferðaþjónusta nýtur sífellt meiri vinsælda og
tekur á sig margbreytilegar myndir. Sumir ferðamenn vilja kynnast
mannlífi sjávarplássa, upplifa náttúruna, þögnina, skoða fugla og sel og
renna fyrir fisk á friðsælum firði. Aðrir vilja spennu hraðbátsins, fara
á brimbretti, sjóskíði og kafa, eða leigja sér bát og láta reyna á eigin
kunnáttu. Svo eru þeir sem ferðast í hópum frá höfn til hafnar og frá
landi til lands á risavöxnum skemmtiferðaskipum.
Hvernig samrýmist þetta menningararfinum, samfélagsþróun,
mannlífi, sjálfbærni, fiskveiði- og umhverfisstefnu þjóða norðursins?
Hvernig geta þjóðir norðursins unnið saman á þessu sviði og eiga þessir
ólíku þættir ferðaþjónustunnar einhvern samstarfsflöt? Á ráðstefnunni
verður fjallað um þessar áskoranir og unnið í hópum til að velta upp enn
fleiri spurningum.
Í vinnusmiðjum verður m.a. rætt um:
•
þróun sjávartengdrar ferðaþjónustu í Noregi, Íslandi, Grænlandi og Færeyjum
•
tækifæri og ógnir, sjálfbærni og umhverfi – áhrif sjávartengdrar
ferðaþjónustu og ímynd norðursins
•
á hvaða sviðum við getum unnið saman
Farið verður í vettvangskönnun þar sem
ferðaþjónustufyrirtæki og söfn verða skoðuð.
Sjá
dagskrá
ráðstefnunnar.
Ráðstefnan er öllum opin en vegna skipulagningar er nauðsynlegt að skrá
þátttöku.
Skráningarfrestur: 10.
maí 2013
Ráðstefnugjald: 12.000 kr.
Ráðstefnuskráning og
hótelbókanir (takmarkað hótelpláss):
conference@aktravel.is, sími 4600600
Nánari upplýsingar veitir Sigurbjörg Árnadóttir:
sibba@svs.is, sími 8648966.
Frásagnarlist á norðurslóðum (12.03.2013)
Á félagsvísindatorgi Háskólans á Akureyri kl. 12:00, miðvikudaginn 13.
mars 2013 mun rithöfundurinn dr.
Lawrence Millman flytja erindi og lesa upp úr verkum sínum undir
yfirskriftinni: On Northern
Storytelling. Torgið er haldið á vegum félagsvísindadeildar HA og
Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar og fer fram á ensku í stofu M102 að
Sólborg við Norðurslóð. Allir velkomnir!
Dr.
Lawrence Millman mun fjalla um sérkenni og mikilvægi frásagnarhefða
frumbyggja á norðurlóðum, flytja og greina sagnir úr munnlegri geymd frá
Grænlandi og norðaustur Kanada og lesa upp úr verkum sínum. Á meðal 15
bóka hans eru Drekkhlaðinn kajak af draugum: sagnir Inúíta, Wolverine
Creates the World, Lost in the Arctic, Parliament of Ravens og Hiking to
Siberia.
Lawrence er með doktorspróf í bókmenntafræðum frá Rudgers University og
hefur kennt við Háskóla Íslands, Tufts University, University of New
Hampshire, Goddard College og Harvard University. Nú í marsmánuði er
hann gistifræðimaður við Stofnun Vilhjálms Stefánssonar en heimilisfesti
hans er í Cambridge, Massachusetts, USA.
Lausar stöður hjá Norðurskautsráðinu
(07.03.2013)
Vakin er athygli á fjórum lausum stöðum hjá
fastaskrifstofu Norðurskautsráðsins í Tromsø. Umsóknarfrestur er til 20.
mars 2013. Sjá nánar
hér.
China-Nordic Arctic Cooperation Symposium 2013
(18.02.2013)
Fyrsta
China-Nordic Arctic Cooperation Symposium
verður haldið við Heimskautastofnunina í Kína í Shanghai í samstarfi við
Rannís, 4.-7. júní 2013. Ráðstefnan er undanfari að stofnun China-Nordic
Arctic Research Center sem fyrirhugað er að koma á fót í Shanghai á
næstunni.
Tillögum að erindum skal skilað fyrir 15.
mars 2013.
Varðandi ferðakostnað skal tekið fram að fyrirlesurum verður séð fyrir
fæði og ferðum innan Kína á meðan ráðstefnunni stendur. Annan kostnað,
t.d. flugfargjöld til og frá Kína og gistingu greiða þátttakendur
sjálfir, en Rannís mun leita leiða til að styrkja hluta af ferðakostnaði
íslenskra fyrirlesara.
Norðurslóðanet Íslands stofnað
(09.02.2013)
Norðurslóðanet Íslands var stofnað formlega við athöfn í Borgum á
Akureyri fimmtudaginn
8. febrúar 2013. Af því tilefni efndu utanríkisráðuneytið og Háskólinn á
Akureyri til móttöku
þar
sem Össur
Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, Stefán Sigurðsson, formaður stjórnar
Norðurslóðanetsins og rektor Háskólans á Akureyri, Pétur Þór Jónasson,
framkvæmdastjóri Eyþings og Embla Eir Oddsdóttir, framkvæmdastjóri
Norðurslóðanetsins fluttu stutt ávörp. Við sama tilefni var Dr. Natalia
Loukacheva boðin velkomin til starfa við Háskólann á Akureyri sem fyrsti
fræðimaðurinn sem gegnir Nansen prófessorsstöðu í norðurslóðafræðum við
háskólann.
Norðurslóðanetið
er hluti af sóknaráætlun landshluta sem Eyþing samtök sveitarfélaga í
Eyjafirði og Þingeyjarsýslum ásamt utanríkisráðuneytinu, mennta- og
menningarmálaráðuneytinu og umhverfis-og auðlindaráðuneytinu hafa
undirbúið í samstarfi við fjölmarga aðila sem tengjast norðurslóðamálum
á Akureyri. Megintilgangur Norðurslóðanets Íslands er að auka sýnileika
og skilning á málefnum norðurslóða sem og starfsemi aðila sem vinna að
málefnum norðurslóða á Íslandi. Netið er vettvangur fyrir fyrirtæki og
stofnanir alls staðar að af landinu sem koma að norðurslóðamálum.
Nýráðinn framkvæmdastjóri Norðurslóðanetsins er
Embla Eir Oddsdóttir (mynd) sem hefur um langt
skeið unnið að verkefnum og rannsóknum er snúa að málefnum norðurslóða.
Stofnaðilar að Norðurslóðanetinu eru: Háskólinn á Akureyri, Stofnun
Vilhjálms Stefánssonar, Heimskautaréttarstofnunin, Rannsókna- og
þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri, Rannsóknaþing norðursins,
Rannsóknamiðstöð Íslands, Rannsóknamiðstöð ferðamála, Arctic Portal,
vinnuhópar Norðurskautsráðsins CAFF (Conservation of Arctic Flora and
Fauna) og PAME (Protection of Arctic Marine Environment). Tengla á
vefsíður ofangreindra stofnaðila má finna á
vefsíðu
Norðurslóðanets Íslands,
sem er í vinnslu.
Aðlögun
samfélaga að loftslagsbreytingum á norðurslóðum
(01.02.2013)
Háskólinn í Umeå auglýsir doktorsnámskeið um aðlögun samfélaga að
loftslagsbreytingum á norðurslóðum. Námskeiðið verður haldið nálægt Umeå
í Svíþjóð, 10.-14. júní 2013. Umsóknarfrestur er til 1. mars 2013.
Sjá
nánari
upplýsingar
hér.
Samstarf á milli Íslands og Noregs á sviði norðurslóðafræða
(01.02.2013)
Vakin er athygli á neðangreindum Arctic Studies ferðastyrkjum fyrir
fræðimenn og stúdenta.
Samstarf
stofnana
Umsóknarfrestur: 2. maí 2013
Styrkir til starfsmanna: Til einstaklinga eða hópa. Hægt að sækja um 8
ferðir í einni umsókn.
Stofnanir geta sótt um fyrir einn eða fleiri . Einstaklingar geta sótt
um styrk fyrir sig.
Umsóknir frá stofnunum hafa forgang og sérstaklega ef um gagnkvæm skipti
er að ræða.
NÝTT: Stuttar námsferðir stúdenta á meistara og/eða doktorsstigi.
Ferðir verða að vera gagnkvæmar á milli Íslands og Noregs og hver hópur
getur verið allt að 12 manns.
Háskólar geta sótt um.
Stúdentaskipti
Umsóknarfrestur: 15. mars 2013
Námsdvöl í 1-12 mánuði sem getur falist í námi, rannsóknarvinnu og/eða
starfsnámi.
Einstaklingar geta sótt um.
Sjá nánari upplýsingar
hér.
Climate Change in Northern Territories: óskað
eftir útdráttum
(25.01.2013)
Climate Change in Northern
Territories -
Sharing Experiences, Exploring New Methods and Assessing Socio-Economic
Impacts: ESPON verkefnið ENECON og NRF (Northern Research Forum
eða Rannsóknaþing norðursins munu halda alþjóðlega ráðstefnu undir þessu
heiti í Háskólanum á Akureyri 22. - 23. ágúst 2013.
Markmiðið er að beina athyglinni að breytingum sem eru að eiga sér stað, að
fyrirliggjandi vitneskju og þörfinni á rannsóknum í norðurhluta Evrópu
og á heimskautasvæðinu og áskorunum sem felast í því að hagnýta
vitneskju sem fæst með rannsóknum.
Hugmyndin er að ráðstefnan muni leiða saman rannsakendur sem hafa svipaðan
bakgrunn en sem hafa verið að beina athyglinni að mismunandi
viðfangsefnum og notað mismunandi aðferðafræði. Hagsmunaaðilar,
stjórnmálamenn og aðrir sem koma að stefnumótun eru einnig meðal
markhópa ráðstefnunnar.
Frestur til að skila inn útdráttum er 28. febrúar 2013. Útdrætti má senda á netfangið
nrf@unak.is.
Skráning á ráðstefnuna hefst 1. apríl 2013.
Nánari upplýsingar um ráðstefnuna má finna á vefsvæðum
ENECON
og
NRF.
Styrkir til íslenskra og norskra
nemenda í heimskautafræðum
(23.01.2013)
Hinn 29. september 2011 var undirritað á
Akureyri, af utanríkisráðherrum Íslands og Noregs, samkomulag til
þriggja ára um samstarf á sviði heimskautarannsókna. Styrkir til
skiptináms (nám, rannsóknir og starfsnám) handa íslenskum og norskum
nemendum í heimskautafræðum eru eitt meginatriðanna í þessu samstarfi.
Styrkirnir eru fyrir kennsluárið 2012-2013 og nema
520 evrum á mánuði til uppihalds, auk ferðastyrks að hámarki 1200 evrur.
Styrkur getur að lágmarki verið til eins mánaðar, en lengst til 12
mánaða.
Skilyrði til að geta hlotið styrk eru hin sömu og
Nordplus-styrkjanna, sem veittir eru til náms eða vinnudvalar, að því
viðbættu að doktorsnemar eiga nú möguleika á styrk. Forgangs njóta
nemendur sem eru í meistara- eða doktorsnámi og nemendur sem hyggja á
nám við norska eða íslenska háskóla sem eru aðilar að hinum fjölþjóðlega
háskóla University of the Arctic.
Umsóknarferli
Nemendur skila inn umsóknum til alþjóðaskrifstofu
síns heimaskóla. Þeim skulu fylgja eftirtalin gögn:
- Markmiðslýsing (500-1000 orð) þar sem lýst er vægi
fyrirhugaðs náms eða vinnudvalar erlendis, á sviði heimskautafræða og
-rannsókna.
- Skannað afrit af samþykktri námsáætlun, frá
heimaskóla og helst einnig gestaskóla.
- Útskrift af einkunnum.
Umsóknarfrestur til 15. mars 2013, fyrir
kennsluárið 2012-2013 (tekið er við umsóknum eftir að frestur er liðinn
og fara þær á biðlista).
Frekari upplýsingar og umsóknareyðublað eru á:
www.arcticstudies.is.
Rannís annast fjárhagslega umsjón ofangreindra
styrkja. The Norwegian Centre for International Cooperation in Education
(SIU) annast umsjón af Noregs hálfu.
Málþing:
Landheilsa – Loftgæði – Lýðheilsa
(02.11.2012)
Landgræðsla ríkisins og
Umhverfisstofnun í samstarfi við
Embætti landlæknis halda málþing um loftmengun af völdum
jarðvegsryks, föstudaginn 16. nóvember 2012. Málþingið fer fram í stofu
132 í Öskju, HÍ, kl. 13:30-16:30.
Heilnæmt andrúmsloft eru mikilvæg lífsgæði. Í andrúmsloftinu er ógrynni
ýmis konar agna eða svifryks, sem myndast bæði af völdum náttúrunnar
sjálfrar og af mannavöldum. Svifryk hefur neikvæð áhrif á heilsu manna,
einnig svifryk af jarðefnauppruna þótt þar sem um að ræða „hreint“ ryk.
Rykmengun frá iðnaði og útblæstri bíla hefur gegnum árin fengið mikla
athygli en minna hefur farið fyrir umræðu um ryk sem rekja má til
uppblásturssvæða, landbúnaðar eða gosösku. Á málþinginu er augum beint
að rykmengun með jarðefnauppruna, áhrifum hennar á heilsu og hvað hægt
er að gera til að lágmarka hana. Losun agna og mengandi efna út í
andrúmsloftið stjórnast því m.a. af ráðstöfun lands, skipulagi, umgengi
við framkvæmdir, ástandi vistkerfa og jarðvegsrofi.
Málþingið er þverfaglegt og er ætlað sem vettvangur milli
náttúruvísinda, lýðheilsuvísinda, hagfræði, stjórnsýslu, landnotenda og
framkvæmdaaðila.
Dagskrá
ráðstefnunnar, sem er öllum opin og ókeypis má nálgast
hér. Nánari
upplýsingar má fá hjá
Önnu Maríu Ágústsdóttur eða
Þorsteini Jóhannessyni.
Lögfræðitorg um
hnattrænar breytingar á norðurslóðum
(23.10.2012)
Þriðjudaginn 23. október mun
dr. Anna Kerttula de Echave fjalla um
hnattrænar breytingar á norðurslóðum. Erindi hennar verður flutt á ensku
og ber yfirskriftina: Global Change: Perspectives from the North.
Hún ræðir um félagslegar breytingar á norðurheimskautssvæðinu sem og
hlýnun og breytingar á veðurfari. Anna Kerttula veltir því fyrir sér
hvernig heimskautavísindi geti upplýst alþjóðasamfélagið um þær
breytingar sem eiga sér stað. Torgið hefst kl. 12:00 í stofu M102. Allir
velkomnir.
Anna Kerttula er mannfræðingur og yfirmaður arktíska félagsvísindasviðs
Bandaríska vísindasjóðsins. Á haustmánuðum 2012 er hún gistifræðimaður
við Stofnun Vilhjálms Stefánssonar sem vísindafélagi Bandaríska
sendiráðsins á Íslandi.
Norðurslóðadagar á Grænlandi 20. - 22. september 2012
(17.09.2012)
Samvinnunefnd um málefni norðurslóða stendur fyrir
Norðurslóðadögum á Grænlandi 20.-22. september 2012. Á undanförnum árum
hefur vísindasamstarf milli íslenskra vísindamanna og vísindamanna á
Grænlandi farið vaxandi og
er ástæða til að efla það enn frekar.
Á Norðurslóðadögunum verður fjallað á
þverfaglegan hátt um framlag og samstarfsverkefni grænlenskra og
íslenskra aðila sem koma að vöktun, rannsóknum og alþjóðlegri samvinnu á
norðurslóðum. Samhliða fyrirlestrum og pallborðsumræðu kynna stofnanir
og félög er tengjast viðfangs- og málefnum norðurslóða starfsemi sína og
rannsóknir með veggspjöldum og öðru kynningarefni á ráðstefnustað.
Skipuleggjendur Norðurslóðadaganna eru Samvinnunefnd umhverfis- og
auðlindaráðuneytis um málefni norðurslóða í samvinnu við Stofnun
Vilhjálms Stefánssonar og Rannís. Á Grænlandi eru Háskólinn á Grænlandi
(Ilisimatusarfik) og Rannsóknarstofnunin um loftslag (Silap Pissusianik
Ilisimatusarfik) samstarfsaðilar um
dagskrá Norðurslóðadaganna.
Samstarf á milli Íslands og
Noregs á sviði norðurslóðafræða
(30.08.2012)
Utanríkisráðherrar Íslands og Noregs undirrituðu viljayfirlýsingu þann
29. september 2011 varðandi rannsóknasamstarf á sviði norðurslóðafræða.
Nú hafa verið auglýstir
ferðastyrkir fyrir fræðimenn og stúdenta.
STÚDENTAR
Umsóknarfrestur: 1.
október 2012
Námsdvöl í 1-12 mánuði.
Ferðastyrkur: 1200 EUR
Uppihaldsstyrkur á mánuði: 520 EUR
FRÆÐIMENN
Umsóknarfrestur: 15.
október 2012
Styrkir til einstaklinga eða hópa. Hægt er að sækja um 8 ferðir í einni
umsókn.
Ferðastyrkur: 500 – 1100 EUR
Dagpeningar í Noregi: 260 EUR
Dagpeningar á Íslandi: 180 EUR
Hámarks lengd styrktrar dvalar eru 6 dagar. Styrkþegi getur verið lengur
en án auka styrks.
Sjá nánari upplýsingar
hér.
Málþing á Akureyri um norðurslóðasamstarf Kína og Íslands
(17.08.2012)
Mánudaginn 20. ágúst 2012 munu Akureyrarbær, Háskólinn á Akureyri,
RANNÍS, Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og Arctic Portal standa fyrir
málþingi um málefni norðurslóða og
norðurslóðasamstarf
Kína og Íslands. Málþingið verður haldið í Hamraborgarsal í Hofi
kl. 8:30-12:30 og verður sett af forseta bæjarstjórnar á Akureyri og
sendiherra Kína á Íslandi. Fyrirlesarar verða vísindamenn frá Kína og
Íslandi sem munu fjalla um norðurslóðarannsóknir landanna, auk þess að
taka sérstaklega fyrir þá samstarfsmöguleika sem felast í
norðurljósarannsóknum á Íslandi og frekara samstarfi á sviði
félagsvísinda. Lokaávarp málþingsins flytur rektor Háskólans á Akureyri.
Snædrekinn
heimsækir Akureyri
(17.08.2012)
Kínverski ísbrjóturinn Snædrekinn (Xue Long) verður opinn til sýnis
fyrir almenning á
Akureyri mánudaginn 20. ágúst kl.12:30-16:00 við Oddeyrarbryggju. Sama
dag kl.13:00 -13:30 verður fréttamannafundur um borð í Snædrekanum, en
ísbrjóturinn heldur svo af stað til Kína í gegnum Norður-Íshafið seinna
um kvöldið. Frekari
upplýsingar um rannsóknaleiðangur Snædrekans má finna
hér.
Staða gestaprófessors í norðurslóðafræðum við
Háskólann á Akureyri
(20.06.2012)
Háskólinn á Akureyri var stofnaður árið 1987. Þar er stunduð kennsla og
rannsóknir á nokkrum fræðasviðum; viðskipta- og raunvísindasviði, hug-
og félagsvísindasviði og heilbrigðisvísindasviði. Nemendur eru alls um
1600 og fastráðnir starfsmenn um 180. Háskólinn á Akureyri býður uppá
mikinn sveigjanleika í námi, m.a. í gegnum vefstutt fjarnám og samstarf
við fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar víða um land. Háskólinn er einnig
framarlega í rannsóknum á ýmsum
sviðum, svo sem líftækni, haffræði og félagsvísindum, og hefur um langt
skeið tekið virkan þátt í rannsóknum og kennslu á norðursl
um stofnun einnig kveðið sarf árðandi samstarf og fastróðum.
Á Akureyri má finna ýmsar stofnanir er vinna að málefnum norðurslóða. Má
þar nefna Stofnun Vilhjálms Stefánssonar, Heimskautaréttarstofnunin,
CAFF (Conservation of Arctic Flora and Fauna) og PAME (Protection of
Arctic Marine Environment), hvorutveggja vinnuhópar norðurskautsráðsins,
Rannsóknaþing norðursins, Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á
Akureyri og Arctic Portal norðurslóðavefgátt.
Utanríkisráðherrar
Íslands og Noregs undirrituðu viljayfirlýsingu þann 29. september 2011
varðandi rannsóknasamstarf á sviði norðurslóðafræða. Í yfirlýsingunni er
einnig kveðið á um stofnun prófessorsstöðu í norðurslóðafræðum við
Háskólann á Akureyri og er staðan kennd við Fridtjof Nansen, hinn kunna
norska heimskautafræðing og húmanista. Hún er veitt til eins árs í senn
framúrskarandi vísindamanni sem starfar að málefnum er tengjast
lagalegum, hagrænum, félagslegum og náttúrufarslegum aðstæðum á norðursl
g/mbærilegu) stöðuna skulu
hafa lokið doktorsgrg fastróðum.
Umsækjendur um stöðuna skulu hafa lokið doktorsgráðu (eða hafa
sambærilega reynslu) og hafa traustan fræðilegan bakgrunn á sviði
lagalegra málefna og sjálfbærrar þróunar á norðursl
og k﷽﷽﷽﷽﷽er
að umsækjendur bi er lóðum.
Einnig er krafist reynslu af þverfaglegu starfi er lýtur að hinu flókna
samspili mannlegs samfélags og umhverfisins og brýnt er að umsækjendur
búi yfir góðri samskiptahæfni og félagslegri færni. Þá er reynsla af
rannsóknastarfi varðandi málefni norðurslóða og af þátttöku í
alþjóðlegum rannsóknarteymum nauðsynleg, sem og skjalfest færni til að
afla rannsóknarstyrkja.
Í starfi prófessorsins felst einkum: (I) að taka þátt í rannsóknum og
kennslu og frekari þróun viðeigandi námsleiða við Háskólann á Akureyri,
(II) að eiga náið samstarf við aðra fræðimenn um eflingu kennslu og
rannsókna á sviði norðurslóðafræða við Háskólann á Akureyri og stuðla að
þróun náms í norðurslóðafræðum í tengslum við Háskóla Norðurslóðanna (University
of the Arctic), (III) að halda opna fyrirlestra um málefni norðurslóða,
jafnt í nærsamfélaginu, víðar á Íslandi og erlendis, og taka virkan þátt
í almennri umræðu um breytingar á norðurslóðum.
og k﷽﷽﷽﷽﷽er
að umsækjendur bi er l og k﷽﷽﷽﷽﷽er
að umsækjendur bi er l
Launakjör verða í samræmi við núgildandi kjör prófessora við íslenska
ríkisháskóla. Prófessorinn hefur aðgang að sérstökum sjóði sem ætlað er
að gera honum kleift að mynda og efla tengsl við innlend og erlend
rannsóknateymi og sækja ráðstefnur. Húsnðuæðis-
og flutningsstyrkur stendur einnig til boða þeim sem búa utan Akureyrar.
Umsóknarfrestur er til 15. ágúst 2012. Formlegt
ráðningartímabil hefst 1. október 2012; nánari tímasetning er
samkomulagsatriði.
Umsóknir skulu berast á rafrænu formi á netfangið nansen@unak.is.
Ekki er notað staðlað umsóknarform. Umsókn skal fylgja greinargóð
skýrsla um náms- og starfsferil, fræðistörf og kennslureynslu.
Umsækjendur skulu senda með umsókn þær fræðilegu ritsmíðar sem þeir
telja sín bestu verk (allt að tíu ritum). Umsækjandi sendir eingöngu
þessi ritverk sín með umsókn, eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg
á rafrænu formi. Umsókn og umsóknargögn sem ekki er skilað rafrænt skal
skila til skrifstofu rektors, Háskólanum á Akureyri, Sólborg
v/Norðurslóð, 600 Akureyri. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu í starfið hefur verið tekin. Ófullnægjandi umsóknir eru ekki
teknar til greina.
Frekari upplýsingar um stöðuna og umsóknarferlið
má finna á vef Háskólans á Akureyri
og fyrirspurnir um
starfið má senda á
nansen@unak.is.
Skiptinám á sviði norðurslóðafræða
(16.02.2012)
Fyrir hönd utanríkisráðuneytis Íslands og Noregs auglýsir
Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins eftir umsóknum um styrki til
skiptináms á milli Íslands og Noregs á sviði Norðurslóðafræða (Arctic
Studies).
Styrkupphæð er 520 evrur
uppihaldsstyrkur á mánuði og allt að 1.200 evrur í ferðastyrk.
Lágmarksdvöl er einn mánuður og hámarkdvöl 12 mánuðir. Dvölin getur
falist í hefðbundnu skiptinámi, rannsóknarnámi eða starfsnámi. Almennt
gilda sömu reglur og um annað skiptinám, eins og Nordplus og Erasmus.
Nemendur í framhalds- og
doktorsnámi hafa forgang og einnig nemendur sem sækja um til háskóla sem
eru aðilar að háskólanetinu University
of the Arctic.
Umsóknarfrestur er til 15. maí 2012 vegna skólaársins 2012-2013.
Sjá nánari
upplýsingar og
umsóknareyðublað.
APECS
auglýsir eftir nýjum forstjóra
(09.02.2012)
The Association of Polar Early Career Scientists (APECS) auglýsir eftri
nýjum forstjóra með aðsetur í Tromsø í Noregi. Nánari upplýsingar um
APECS má finna á
vefsíðu þeirra, þar sem einnig er hægt að lesa
skýrslur og annað
útgefið efni.
Sjá nánar um stöðu forstjóra
hér.
Umsóknarfrestur er til 27. febrúar 2012.
ICASS VII: Viðtöl
(16.01.2012)
Skrifstofa
IASSA sem
hefur verið á Stofnun Vilhjálms Stefánssonar sl. þrjú ár hefur nú verið
flutt til
University of Northern British Columbia (UNBC) í Prince George í Kanada.
Þar mun áttunda ICASS ráðstefnan verða haldin árið 2014.
Hér að neðan eru sex tenglar í viðtöl við fólk á sjöundu ICASS
ráðstefnunni sem haldin var á Akureyri sumarið 2011:
1)
Students
2)
Martin Lougheed, Inuit Knowledge Center
3)
Sven Hakaanson, Alutiiq Museum
4)
Salmon Source of Life
5)
Yefimenko, Arctic Council IPS
6)
Joan Nymand Larsen, ICASS VII
Loftslag og lífríki
(29.11.2011)
Málþing um áhrif
loftslagsbreytinga á náttúrufar og lífríki
verður haldið föstudaginn 2.
desember 2011 kl. 13-16:30 á
Grand Hóteli.
Fundarstjóri er Magnús Jóhannesson
ráðuneytisstjóri í umhverfsráðuneytinu.
Dagskrá
málþingsins
13:00
Opnun málþings:
Kristín Linda Árnadóttir,
forstjóri Umhverfisstofnunar
13:10
Losun gróðurhúsalofttegunda, staða og horfur:
Christoph Wöll, Umhverfsstofnun
13:30
Hnattrænar loftslagbreytingar og áhrif
þeirra. Hvert stefnir?:
Halldór Björnsson, Veðurstofu Íslands
13:50
Náttúrulegar sveifur og langtíma breytingar
á sýrustigi sjávar við Ísland:
Jón Ólafsson, Hafrannsóknastofnun og
Háskóla Íslands
14:10
Endurheimt votlendis sem mótvægisaðgerð:
Jón Guðmundsson,
Landbúnaðarháskóla Íslands
14:30
Kaffi
14:45
Skógar- og loftslagsbreytingar:
Arnór Snorrason, Brynhildur Bjarnadóttir, Björn Traustason
og Þorbergur Hjalti Jónsson,
Rannsóknastöð skógræktar, Mógilsá
15:05
Líffræðileg fjölbreytni:
Hildur Vésteinsdóttir,
Umhverfisstofnun
15:20
Fæðubreytingar í sjó og áhrif á
sjófuglastofna við Ísland:
Arnþór Garðarsson prof. emiritus
15:40
Þróun svartfuglsveiða – tölur úr
veiðiskýrslum:
Steinar Rafn Beck, Umhverfisstofnun
16:00
Innrásarvíkingar:
Erling Ólafsson,
Náttúrufræðistofnun Íslands
16:20
Samantekt fundarstjóra
16:30
Lok málþings
ICASS VII ráðstefnan á Akureyri
(01.07.2011)
Sjöunda ráðstefna Alþjóðlegra
norðurslóðasamtaka félagsvísindamanna
(IASSA) fór fram í húsnæði Háskólans á
Akureyri dagana 22.-26. júní 2011. Ráðstefnuna sóttu yfir 400 manns frá
30 löndum og tókst hún í alla staði mjög vel.
Fréttamaður frá National Geographic News var á ráðstefnunni og mun efni
frá ráðstefnunni birtast þar. Nú þegar má sjá og heyra viðtal sem hann
tók við
Joan Nymand Larsen, forseta samtakanna,
sem hafa haft aðsetur sitt á Akureyri sl. þrjú ár. Einnig er þar
ræða Svandísar Svavarsdóttur,
umhverfisráðherra, sem bauð gesti velkomna á opnunardegi ráðstefnunnar.
Fyrirlestur: Áhrif loftslagsbreytinga á heimskautagróðurfar
Hlýnun jarðar er hvað hröðust á norðurhveli jarðar. Í fyrirlestri sem
Akureyrarsetur Náttúrufræðistofnunar Íslands býður uppá í Háskólanum á
Akureyri verður fjallað um áhrif hlýnunarinnar á heimskautagróðurlendi
og þær rannsóknaraðferðir sem notaðar eru. Erindið verður haldið
fimmtudaginn 28. apríl kl. 12:10 í stofu M101 í Miðborg (nýbygging HA).
Martha Raynolds, gróður- og fjarkönnunarfræðingur við Háskólann í
Alaska, Fairbanks, flytur erindi sitt Searching for the effects of
climate change on tundra vegetation. Erindið verður flutt á ensku.
Útdráttur erindis á ensku: It is well-known that northern latitudes are
warming faster than the Earth as a whole. This warming has been
documented for several decades, but the effect on arctic vegetation has
been difficult to document. Experimental results give us some indication
of what types of changes to look for. However in natural conditions the
complex interactions between the soils, permafrost, vegetation and
atmosphere, as well as natural variability, make these changes hard to
measure. Satellite remote sensing, repeat photography, tree-ring studies
and permanent vegetation plots provide information on the varied
response of vegetation to climate change in different parts of the
Arctic.
Málstofa um sjófugla við Ísland
Umhverfisráðuneytið og Náttúrufræðistofnun Íslands efna til málstofu
fimmtudaginn 31. mars 2011 um ástand og þróun helstu stofna sjófugla við
landið, hvernig loftslags- og umhverfisbreytingar hugsanlega virka á
stofnana og umhverfi þeirra og hvernig bregðast megi við slíkum
breytingum.
Dagskrá:
13:00 Setning, Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra
13:10 Sjófuglastofnar við Ísland - inngangur. Arnþór Garðarsson
prófessor Háskóla Íslands
13:40 Loftslagsbreytingar og hlýnun sjávar. Halldór Björnsson
Veðurstofu Íslands.
14:00 Hvaða áhrif gæti hlýnun haft á lífríki sjávar við Ísland og
á nálægum svæðum. Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræðingur
14:20 Fæða stærstu stofna íslenskra sjófugla. Kristján Lilliendahl,
Hafrannsóknastofnun
14:40 Stofnrannsóknir á lunda, hlýnun sjávar og sjálfbærni
veiða. Erpur S. Hansen Náttúrustofu Suðurlands
15:00 Kaffi
15:20 Vetrarstöðvar íslenskra bjargfugla. Guðmundur A. Guðmundsson,
Náttúrufræðistofnun Íslands
15:40 Vöktun sjófugla og annarra mikilvægra fuglastofna. Kristinn H.
Skarphéðinsson, Náttúrufræðistofnun Íslands
16:00 Mögulegar aðgerðir – umræða
17:00 Fundarslit
Ráðstefna:
ICASS VII á Akureyri 22.- 26. júní
2011 - Skráning er hafin
Sjá upplýsingar um þessa alþjóðlegu ráðstefnu
félagsvísindamanna á norðurslóðum
hér.
Málþing: Fishing
People of the North: Cultures, Economies, and Management Responding to
Change
27th Lowell Wakefield Fisheries Symposium verður haldið í
Anchorage, Alaska, 14.-17.
september 2011.
Kallað er eftir útdráttum fyrir 4.apríl 2011. Sjá nánari upplýsingar um málþingið og skráningu
hér.
Opinn fyrirlestur Robert W. Corell
Rannsóknamiðstöð Íslands, Rannís, og Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands
standa fyrir opnum fyrirlestri með dr. Robert W. Corell, heimsþekktum
vísindamanni sem hefur einkum rannsakað áhrif loftslagsbreytinga á
norðurslóðum. Fyrirlestur Corell sem fjallar um hraðfara breytingar á
norðurslóðum og þýðingu þeirra fyrir stjórnun á heimsvísu verður haldinn
þriðjudaginn 15. febrúar nk. kl. 12:00-13:00 í stofu 201 í Odda, Háskóla
Íslands. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Sjá
auglýsingu um fyrirlesturinn.
Einnig er bent á að Robert Corell flytur annan fyrirlestur, Hraðfara
breytingar á norðurslóðum og þýðing þeirra fyrir vísindi og stefnumótun,
á félagsvísindatorgi Háskólans á Akureyri, mánudaginn 14. febrúar kl.
12:00-13:00 í stofu M102, Sólborg, sjá auglýsingu á
www.unak.is.
|