Heim

Um stofnunina

Aðsetur Norðurlandsdeildar Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi

Skrifstofa NRF 

Miðstöð NABO á Íslandi

Háskóli norðurslóða

Tenglar

English version

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Stofnun Vilhjálms Stefánssonar
Borgum við Norðurslóð
600 Akureyri
Sími 460 8980
Bréfasími 460 8989

Viðburðir á vegum SVS
Stofnun Vilhjálms Stefánssonar stendur að ráðstefnum, vinnusmiðjum, námskeiðum og fyrirlestrum.  Hér að neðan eru aðeins nefndir stærri viðburðir.


Helstu viðburðir árið 2009

Fyrirlestur og opnun sýningar í Honningsvåg í Noregi
Fimmtudaginn 24. september 2009 flytur dr. Jón Haukur Ingimundarson frá Stofnun Vilhjálms Stefánssonar fyrirlestur um Ísland, loftslagsbreytingar og Heimskautslöndin unaðslegu á norsku vísindadögunum, sem haldnir eru í Honningsvåg í Noregi og að þessu sinni tileinkaðir lífvænlegum strandsamfélögum. 

Jafnframt verður opnuð sýning á l
jósmyndum og dagbókartextum Vilhjálms Stefánssonar, sem eru grunnurinn í farandsýningu stofnunarinnar, Heimsskautslöndin unaðslegu (The Friendly Arctic), sem einnig er aðgengileg sem vefsýning.

Helstu viðburðir árið 2008

Skrifstofa IASSA til Íslands
Dr. Joan Nymand Larsen, vísindamaður við Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og lektor við Háskólann á Akureyri var nýlega kosin forseti IASSA (International Arctic Social Sciences Association) til þriggja ára og mun skrifstofa samtakanna flytjast frá Nuuk á Grænlandi til Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar á Akureyri þegar hún tekur við embættinu, 1. október 2008. Starfstímabili Joan og átta manna ráðs IASSA lýkur með sjöunda  þingi IASSA sem haldið verður á Akureyri sumarið 2011. IASSA eru alþjóðleg samtök félagsvísindafólks sem stundar rannsóknir á norðurslóðum. Samtökin láta sífellt meir að sér kveða í alþjóðlegu samstarfi á norðurslóðum og koma að fjölda verkefna og viðburða sem fagleg samtök félagsvísindafólks og eru m.a. áheyrnarfulltrúi að Norðurskautsráðinu.

Minningarfyrirlestur Vilhjálms Stefánssonar
Félagsvísindatorg Háskólans á Akureyri og minningarfyrirlestur Vilhjálms Stefánssonar 2008 verða haldin sameiginlega miðvikudaginn 29. október kl. 12-13 í stofu L201 á Sólborg. Fyrirlesturinn er á vegum Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar, Háskólans á Akureyri og Jafnréttisstofu. Allir eru velkomnir.
Fyrirlesari verður Dr Gunhild Hoogensen, dósent við stjórnmálafræðideild Háskólans í Tromsö. Titill fyrirlestursins er
Drill Baby, Drill: from Energy to Human Security in the Circumpolar North. Gunhild hefur m.a. rannsakað, kennt og skrifað um mannlegt öryggi á norðlægum slóðum, en einnig umhverfismál, málefni kynjanna og fleira. Hún fékk nýlega stóran styrk frá norska rannsóknaráðinu í verkefni sem hún leiðir á þessu sviði. Sjá nánari upplýsingar um Gunhild og útdrátt.

Heimsskautslöndin unaðslegu á vef og vegg
Í tilefni af 10 ára afmæli Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar  hefur stofnunin látið gera vefútgáfu af farandsýningunni Heimsskautlöndin unaðslegu og er hún aðgengileg á íslensku, ensku og dönsku.

Einnig hafa ljósmyndir og dagbókartextar úr ferðum Vilhjálms verið settar upp á veggjum í anddyri Borga við Norðurslóð á Akureyri. Húsið er opið virka daga frá
07:30 til 17:15.

Tíu ára afmæli
Stofnun Vilhjálms Stefánssonar fagnar tíu ára afmæli stofnunarinnar um þessar mundir. Af því tilefni hefur stofnunin meðal annars opnað vefútgáfu af farandsýningunni Heimsskautslöndin unaðslegu. Á farandsýningunni má finna valdar ljósmyndir úr safni Vilhjálms Stefánssonar, handrit og útgefið efni, útdrátt úr dagbókum hans, kynningartexta og muni frá hinum ýmsu svæðum norðurslóða. Ljósmyndir og dagbókartextar farandsýningarinnar eru nú til sýnis í anddyri Borga við Norðurslóð, þar sem stofnunin er til húsa.

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra ávarpaði samkomu sem haldin var í tilefni afmælisins. Hún sagði það gæfu stofnunarinnar að hún hefði skotið rótum í frjóum jarðvegi á Akureyri. Hún hefði stuðning af sambýli við Háskólann á Akureyri, ýmsar vísindastofnanir og skrifstofur tveggja verkefna Norðurskautsráðsins um vernd lífríkis og umhverfis hafsins. Byggð hefði verið upp góð umgjörð fyrir störf stofnunarinnar í akademísku samfélagi sem væri bæði þiggjandi og gefandi fyrir Stofnun Vilhjálms Stefánssonar. Hér má lesa ræðu umhverfisráðherra í heild sinni.

 

Viðburðir fyrri ára