Heim

Um stofnunina 

Viðburðir

Skrifstofa NRF

Miðstöð NABO 
á Íslandi

Háskóli 
norðurslóða

Tenglar

English version

 

Samvinnunefnd um málefni norðurslóða


Samvinnunefnd um málefni norðurslóða er lögbundin nefnd (sjá lög um Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og samvinnunefnd um málefni norðurslóða nr. 81, 26. maí 1997) með það hlutverk að leitast við að treysta og efla samstarf hlutaðeigandi aðila um rannsóknir á norðurslóðum og málefni Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar. Nefndin er skipuð til fjögurra ára í senn og eiga 11 fulltrúar sæti í nefndinni. Formaður og varaformaður skulu skipaðir án tilnefningar og eftirtaldar stofnanir skulu tilnefna einn fulltrúa hver: Hafrannsóknarstofnun, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hollustuvernd ríkisins, Náttúrufræðistofnun Íslands, Rannsóknarráð Íslands, Rannsóknarstofnun landbúnaðarins og Veðurstofa Íslands.

Nefndin er þannig skipuð frá 20. ágúst 2008 til 20. ágúst 2012:

Þorsteinn Gunnarsson, verkefnisstjóri hjá RANNÍS  - formaður nefndarinnar
Anna Guðrún Þórhallsdóttir, prófessor við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri
Gunnlaug Einarsdóttir, sviðsstjóri hjá Umhverfisstofnun
Héðinn Valdimarsson, sérfræðingur hjá Hafrannsóknarstofnun
Kristinn J. Albertsson, forstöðumaður Akureyrarseturs Náttúrufræðistofnunar Íslands
Lýður Skúli Erlendsson, sérfræðingur hjá RANNÍS
Níels Einarsson, forstöðumaður Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar
Steingrímur Jónsson, prófessor við Háskólann á Akureyri
Þóra Ellen Þórhallsdóttir, hjá líffræðiskor raunvísindadeildar Háskóla Íslands
Þóranna Pálsdóttir, sviðsstjóri hjá Veðurstofu Íslands