|
Minningarfyrirlestrar
Fyrirlestrar til minningar um Vilhjálm Stefánsson og störf hans eru haldnir
með reglulegu millibili, venjulega nálægt afmælisdegi Vilhjálms, sem var
3. nóvember.
Dr. Oran Young, prófessor og forstöðumaður Institute
of Arctic Studies við Dartmouthháskóla í New Hampshire, Bandaríkjunum
hélt fyrsta minningarfyrirlesturinn í Háskólanum á Akureyri, þann 8.
desember 1998. Fyrirlesturinn nefndi hann
Creating
an Arctic Sustainable Development Strategy.
Mark Nuttall, prófessor við félagsfræðideild Háskólans í Aberdeen
í Skotlandi, flutti fyrirlestur sinn, Global Processes and community viability in the circumpolar
North á Hótel KEA á Akureyri þann 3. nóvember 2000, í upphafi
fyrsta þings NRF (Northern Reseach Forum).
Forseti Íslands, Dr.Ólafur Ragnar Grímsson
flutti þriðja minningarfyrirlesturinn við Dartmouthháskóla í New
Hampshire, Bandaríkjunum, þann 1. nóvember 2002. Fyrirlesturinn nefnist
The
Stefansson-Dartmouth Legacy and the Role of America, Russia and the Nordic
Countries in the Future of the North.
Fjórði minningarfyrirlesturinn var fluttur mánudaginn 13. október
2003 af landstjóra Kanada, frú Adrienne Clarkson, sem var í opinberri heimsókn
á Íslandi í boði forseta Íslands. Fyrirlesturinn kallaði hún
A Threshold of the Mind: The Modern North og var hann
fluttur í fyrirlestrasal Háskólans á Akureyri í Oddfellowhúsinu við Sjafnarstíg.
Fimmti minningarfyrirlesturinn
var fimmtudaginn 9. september 2004 í Oddfellow húsinu á Akureyri og samanstóð af tveimur erindum
fluttum af Svíum í tilefni heimsóknar sænsku konungshjónanna og
krónprinsessunnar til Akureyrar.
Laila Freivalds, utanríkisráðherra Svíþjóðar flutti erindi sem kallaðist
Swedish Arctic
Policy og Sverker Sörlin, prófessor flutti fyrirlestur sem hann
kallaði The Human Arctic: Stefansson, Ahlmann, and
the Quest for an Arctic within History.
Sjötti
minningarfyrirlesturinn var haldinn af
Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og Scott Polar Research Institute í
sameiningu í húsnæði
Scott Polar
Research Institute að Lensfield Road í Cambridge á Englandi þann
1. nóvember 2005. Dr. Gísli Pálsson, prófessor í mannfræði við Háskóla
Íslands flutti fyrirlesturinn og nefndi hann Travelling Passions: The Life and Legacy of Vilhjalmur
Stefansson, the Arctic Explorer.
Sjöundi minningarfyrirlesturinn
var
haldinn við Dartmouth College í New Hampshire þann 1. nóvember 2006. Blaðamaðurinn
Andrew C. Revkin frá New York Times
flutti fyrirlesturinn sem hann nefndi The North Pole Was Here: On The
Front Lines Of Climate Change, From The Arctic To The Beltway.
Andrew Revkin er einn virtasti vísindablaðamaður Bandaríkjanna og hefur sl.
aldarfjórðung skrifað um allt frá fellibylnum Katrínu og
flóðbylgjunni miklu í Asíu til samskipta vísinda og
stjórnmála, og loftslagsbreytinga á Norðurslóðum. Hann hefur skrifað um
umhverfismál fyrir The New York Times síðan 1995 og þrisvar
ferðast til Norðurheimskautssvæðisins.
Áttunda
minningarfyrirlesturinn flutti Dr. Astrid Ogilvie, veðurfarssagnfræðingur
við Institute of Arctic and Alpine Research í Boulder, Colorado,
í Háskólanum á Akureyri, 7. nóvember 2007.
Fjallaði fyrirlesturinn um loftslag, sögu og mannvistfræði á norðanverðu
Íslandi í ljósi þverfaglegra rannsókna. Erindið kallaði hún: “Interdisciplinary
Explorations in the Climate, History and Human Ecology of Northern Iceland.”
Nánari upplýsingar um Astrid og hennar verk er að finna
hér.
Að þessu sinni boðaði Stofnun Vilhjálms Stefánssonar til fyrirlestursins í
samstarfi við Háskólann á
Akureyri og
RANNÍS. Viðburðurinn var liður í framlagi stofnananna til Alþjóða
heimskautaársins.
Útdrátt
fyrirlestursins má lesa
hér.
|