|
Aðsetur Norðurlandsdeildar Félags Sameinuðu
þjóðanna
Stofnun Vilhjálms
Stefánssonar |
Skrifstofa
IASSA IASSA eru alþjóðleg samtök félagsvísindafólks sem stundar rannsóknir á norðurslóðum. Samtökin láta sífellt meir að sér kveða í alþjóðlegu samstarfi á norðurslóðum og koma að fjölda verkefna og viðburða sem fagleg samtök félagsvísindafólks og eru m.a. áheyrnarfulltrúi að Norðurskautsráðinu. Skrifstofa IASSA fluttist til Íslands frá Nuuk á Grænlandi haustið 2008 þegar Dr. Joan Nymand Larsen, vísindamaður við Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og lektor við Háskólann á Akureyri var kosin forseti samtakanna til þriggja ára. Starfstímabili Joan og átta manna ráðs IASSA lauk með sjöunda þingi IASSA sem haldið var á Akureyri 22.-26. júní 2011. Þar var kosinn nýr forseti samtakanna, Gail Fondahl, prófessor við University of Northern British Columbia (UNBC) í Prince George í Kanada, þar sem áttunda þing IASSA verður haldið árið 2014. Skrifstofa IASSA hefur verið flutt til Kanada.
|