|
Ašsetur Noršurlandsdeildar Félags Sameinušu žjóšanna į Ķslandi
Stofnun Vilhjįlms Stefįnssonar |
Háskóli norðurslóða Mikilvægt áherslusvið í samvinnu á norðurslóðum er að efla það samstarf norrænna háskóla sem stuðlað getur að fræðslu og rannsóknum á þeim ferlum í samfélagi og náttúru er tengjast sjálfbærri þróun. Áherslan þarf að vera þverfræðileg og fjölþjóðleg til skilnings og lausnar á vandamálum sem teygja sig yfir landamæri vísindagreina og þjóðlanda. Þegar er í gangi undirbúningur Háskóla norðurslóða (University of the Arctic) sem mun byggja á slíkum grunni og eiga Norðurlöndin öll aðild að því undirbúningsstarfi, ásamt með háskólastofnunum í Bandaríkjunum, Kanada og Rússlandi en einnig fulltrúum frumbyggjasamtaka á norðurheimskautssvæðunum. Stofnun Vilhjálms Stefánssonar hefur hannað námskeið sem stefnt er á að kenna í samstarfi við Háskólann á Akureyri, sem íslenskt og vestnorrænt framlag til Háskóla norðurslóða. Hér er ensk lýsing á drögum aš skipulagi háskólanáms í norðurslóðafræðum til B.A. og B.S. prófs. |