|
Aðsetur Norðurlandsdeildar Félags Sameinuðu
þjóðanna
Stofnun Vilhjálms
Stefánssonar |
Fishernet verkefnið
Trossan Stofnun Vilhjálms Stefánssonar tekur þátt í Evrópuverkefninu Fishernet/Trossan sem er þriggja ára samstarfsverkefni fiskveiðiþjóða í Evrópu. Verkefnið hófst í september 2008 og miðar að því að varðveita, miðla og nýta menningararf sem tengist sjósókn, umhverfisþekkingu sjómanna og sérstakri menningu fiskveiðisamfélaga. Lykilþátttakendur í verkefninu koma frá Sjálfsstjórnarhéraðinu Galesíu á Spáni sem leiðir verkefnið, Íslandi, Noregi, Orkneyjum við Skotland, Búlgaríu og Kýpur.
Stofnun
Vilhjálms Stefánssonar tekur þátt í verkefninu með áherslu á strand- og
fiskveiðimenningu á Íslandi, Færeyjum og á Grænlandi. Gagnagrunnurinn mun því hafa að geyma í máli og myndum, jafnt efni um sjósókn, hlutverk kvenna og karla í fiskveiðimenningu, umhverfisþekkingu, vita, matarmenningu, tónlist, báta, verbúðarleiki og sjóskrímsli, svo eitthvað sé nefnt. Gagnasafninu er ætlað að auðvelda aðgengi að upplýsingum og kynningu á einum dýrmætasta þætti íslenskrar menningararfleifðar. Hér má sjá hvað komið er inn. Stofnun Vilhjálms Stefánssonar leggur ríka áherslu á þátttöku og samstarf við sem flesta í nærsamfélaginu, ekki síst grasrótarfrumkvæði þar sem unnið er á skapandi hátt með fiskveiðiarfleiðina og aðstoðað við að kynna og gera arfinn spennandi í augum komandi kynslóða. Fréttablað FISHERNET (á ensku)
| ||||||||