Heim   

Um stofnunina

Viðburðir 

Miðstöð NABO á Íslandi

Háskóli norðurslóða

Tenglar

English version

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Stofnun Vilhjálms Stefánssonar
Borgum við Norðurslóð
600 Akureyri
Sími 460 8980
Bréfasími 460 8989

 Félag Sameinuðu þjóðanna
-
Norðurlandsdeild -



Þann 24. september 2008 var Norðurlandsdeild Félags Sameinuðu þjóðanna stofnuð á Akureyri en með Norðurlandsdeildinni var starfsemi Félags Sameinuðu þjóðanna í fyrsta sinn færð út fyrir höfuðborgarsvæðið.

Félag Sameinuðu þjóðanna var stofnað 2. ágúst 1946 en markmið þess eru:

  • að stuðla að samvinnu allra þjóða heims

  • að vinna að því að treysta alþjóðafrið og öryggi

  • að vinna almenning í landinu til fylgis og stuðnings við samtök Sameinuðu þjóðanna

  • að vinna að því í samvinnu við blöð, útvarp, sjónvarp og skóla að kynna Íslendingum hugsjónir og starfsemi hinna sameinuðu þjóða

  • að samræma starf þeirra félagssamtaka sem leggja vilja lið sitt til að framkvæma hugsjónir Sameinuðu þjóðanna

Formaður stjórnar félagsins er Ólafur Örn Haraldsson, en framkvæmdastjóri er Berglind Sigmarsdóttir.

Embla Eir Oddsdóttir, verkefnastjóri hjá Stofnun Vilhjálms Stefánssonar er stjórnarmaður í Félagi Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og tengiliður Norðurlandsdeildarinnar.

Frekari upplýsingar um starfsemi félagsins og verkefni þess er a finna á heimasíðunni www.un.is og á fésbókarsíðunni www.facebook.com/UNAIceland.